Pólska þingið samþykkir umdeildar breytingar um skipun dómara Atli Ísleifsson skrifar 20. júlí 2017 15:21 Úr sal pólska þingsins í Varsjá í morgun. Vísir/epa
Neðri deild pólska þingsins samþykkti í morgun frumvarp sem mun færa dómsmálaráðherra landsins vald til að skipa dómara við hæstarétt landsins. Samkvæmt frumvarpinu munu núsitjandi dómarar við réttinn láta af störfum. Lagabreytingin hefur sætt mikilli andstöðu, bæði í Póllandi og hjá Evrópusambandinu. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar söfnuðust saman fyrir framan þinghúsið í Varsjá í morgun þar sem forsetinn Andrzej Duda var meðal annars hvattur til að beita neitunarvaldi gegn frumvarpinu. 235 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu og 192 gegn. 23 þingmenn sátu hjá. Málið kemur nú til kasta efri deildar pólska þingsins. Frumvarpið er það nýjasta í röð aðgerða stjórnarinnar sem miðar að því að auka pólitísk afskipti af dómskerfinu. Stjórnarflokkurinn Lög og réttlæti hefur sætt mikilli gagnrýni vegna aðgerðanna, en segir þær nauðsynlegar til að auka skilvirkni innan dómskerfisins og draga úr spillingu. Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB og fyrrverandi forsætisráðherra Póllands, hefur kallað frumvarpið skref aftur á bak og ganga gegn gildum Evrópusambandsins. Hann hefur farið fram á fund með Duda forseta til að ræða málið.
Mest lesið Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Innlent Katrín sér ekki eftir framboði sínu Innlent Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Þakklát og telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Eldgosið í beinni útsendingu Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins