Chicharito kemur á Laugardalsvöllinn | West Ham keypti hann í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2017 22:03 Javier Hernandez í leik með Manchester United. Vísir/Getty
West Ham hefur náð samkomulagi við þýska félagið Bayer Leverkusen um að kaupa mexíkóska framherjann Javier Hernandez. Lundúnafélagið borgar Leverkusen sextán milljónir punda fyrir hinn 29 ára gamla Javier Hernandez. BBC segir frá. Javier Hernandez, oftast kallaður Chicharito, mun nú fljúga til London til þess að gangast undir læknisskoðun. Þetta verður í annað skiptið sem Javier Hernandez reynir fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði 59 mörk í 156 leikjum með Manchester United frá 2010 til 2015. West Ham er líka langt komið með að kaupa austurríska framherjann Marko Arnautovic frá Stoke City en félagið mun væntanlega borga 24 milljónir punda fyrir hann og ganga frá kaupunum á næstu 48 klukkutímum. Arnautovic er 28 ára gamall og kom til Stoke frá Werder Bremen fyrir fjórum árum. Hann er aðeins búinn með eitt ár af fjögurra ári samningi við Stoke. Chicharito skoraði 39 mörk í 76 leikjum með Bayer Leverkusen en hann spilaði tvö tímabil með liðinu. Hann hefur einnig spilað með spænska stórliðinu Real Madrid og er markahæsti landsliðsmaður Mexíkó frá upphafi. West Ham stendur í stórræðum þessa dagana því liðið gekk fyrr í vikunni frá eins árs lánsamningi á Joe Hart frá Manchester City. Javier „Chicharito“ Hernandez verður því væntanlega með West Ham á móti Manchester City 4. ágúst næstkomandi þegar liðin mætast í vináttuleik á Laugardalsvellinum en það er síðasti undirbúningsleikur félaganna fyrir komandi tímabil.
Enski boltinn Mest lesið Fann gamlan vin í leit sinni að nýju og breyttu lífi Körfubolti Bellingham talaði um sig í þriðju persónu eftir leik: Sjáðu sigurmarkið Fótbolti Eru að reyna að kaupa kærustuparið Enski boltinn Njarðvík yfirgefur Ljónagryfjuna og fær nýjan heimavöll afhentan í sumar Körfubolti Norðurlandamethafinn útskrifuð með BS gráðu í læknisfræði Sport Frábær mörk og óvæntur stórsigur Rúmena á Úkraínumönnum Fótbolti Neffati um Íslandsævintýrið: Grófur fótbolti í íslensku deildinni Íslenski boltinn UEFA gerir allt til þess að rússneski fáninn sjáist ekki í dag Fótbolti Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Enski boltinn Mbappé með ákall til kjósenda í Frakklandi Fótbolti Fleiri fréttir Man City sagt ekki ætla að styrkja sig með nýjum leikmönnum Eru að reyna að kaupa kærustuparið Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Lallana snýr aftur til Southampton Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Tilkynntu framlengingu Kerr með dramatísku myndbandi Myndi vilja tala við Rashford og Greenwood en selja Maguire Einn af styrktaraðilum Newcastle sagður misþyrma starfsfólki Ten Hag heldur starfi sínu hjá Manchester United Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Reynir aftur að fá Bale til Wrexham: „Hann má spila golf hvenær sem er“ Fyrrum fyrirliði Liverpool liggur þungt haldinn á spítala Sonur Dannys Mills vann silfur á EM í frjálsum Van Gaal hrósar Liverpool fyrir að ráða Slot Shaw skýtur á Ten Hag og læknateymi United: „Ég hefði aldrei átt að spila“ Stjórnarformaður Liverpool staðráðinn í að spila leiki utan Englands Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“ City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“ Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann Sjá meira
Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Enski boltinn
Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Enski boltinn