Óskylt að greiða fjallskil vegna viðhalds á girðingum og réttum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. júlí 2017 06:00 Fjallskilagjöld Borgarbyggðar renna meðal annars til viðhalds á Þverárrétt. vísir/valli
Eigandi fjárlausrar jarðar þarf ekki að greiða fjallskilagjöld þar sem gjöldin runnu meðal annars til viðhalds á girðingum og réttum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Vesturlands. Sveitarfélagið Borgarbyggð höfðaði mál gegn eigendum Sólheimatungu í Stafholtstungum til greiðslu fjallskilagjalda. Jörðin átti upprekstrarrétt á afrétt á Bjarnardal allt til ársins 1998 en þá var réttinum sagt upp. Núverandi eigendur keyptu jörðina 2012 og skulduðu tæplega 144 þúsund krónur í fjallskil. Jarðareigendur töldu sér ekki skylt að greiða gjaldið þar sem enginn fjárbúskapur væri á jörðinni. Þá bentu þeir á að með fjallskilum væri átt við smölun og leitir. Af því leiddi að álagning fjallskilagjalda heimilaði aðeins innheimtu gjalds sem stæði undir þeim kostnaði sem af því hlýst. Í niðurstöðu dómsins segir að þrátt fyrir að Borgarbyggð hafi ekki sundurliðað í hvað fjallskilagjaldið nýttist þá lægi það ljóst fyrir að gjaldið hefði meðal annars verið nýtt til viðhalds á girðingum og réttum. Af þeim sökum þótti álagning fjallskilagjaldsins í fjallskilasamþykkt ekki eiga sér stoð í lögum um afréttarmálefni og fjallskil. Ingi Tryggvason, lögmaður Borgarbyggðar í málinu, segir að dómnum verði ekki áfrýjað til Hæstaréttar þar sem hin umdeilda upphæð nái ekki lágmarksáfrýjunarfjárhæð. Ekki verði sótt um áfrýjunarleyfi. Málskostnaður, 900 þúsund krónur, fellur á sveitarfélagið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Dróu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Sjá meira