Júlíspá Siggu Kling – Nautið: Átt það til að festa þig of lengi í sömu vinnunni 7. júlí 2017 09:00
Elsku Nautið mitt. Þú ert svo tilfinningaríkt og hugmyndaríkt í öllu sem þú gerir en það er svo algengt að þú fáir bakþanka og hættir við það sem þig langar að gera og framkvæma. Þá verður þú svo prútt og stillt, en það fer þér engan veginn og gerir þig svo leiðinlegt! Þú hefur tíma til að breyta því sem þú villt og lykilorðið sem ég ætla að senda þér er: „hugrekki“. Þú skalt segja dag hvern: „Ég er hugrökk“ eða „ég er hugrakkur“. Þú átt það til að festa þig of lengi í sömu vinnunni og með sömu vinunum því þú ert svo pottþétt. En það getur líka rifið þig niður. Þannig að þú skalt skora á sjálft þig og gera eitthvað nýtt í hverri viku, klæða þig vel og hafa til, ákveða á morgnana hvernig þú vilt hafa daginn því andlegra og sterkara merki er ekki til. Notaðu þessa orku þína til þess að njóta þess hversu einstakt þú ert. Og já, ég tala við þig eins og þú sért „það“, vegna þess að Nautið er það, Nautið. Ef þér finnst eins og sami hluturinn sé að koma fyrir þig aftur og aftur, eitthvað sem þér líkar ekki við, þá ertu á vitlausri tíðni og ert að bölsótast yfir því sem hefur gerst. En með því að bölsótast heldur veröldin að þú sért að kalla á það sama aftur og aftur. Um leið og þú ákveður að breyta um stíl og tala um það sem þig langar í, þá áttu svo auðvelt með að tileinka þér bæði himininn og jörðina; allan alheiminn! Þú ert sérstakt góðmenni sem skilur eftir þig svo miklar tilfinningar gagnvart þínum nánustu. Þannig að það besta sem þú getur gert á hverjum degi er að búa til minningu fyrir aðra. Og þú skalt ákveða að vera góð minning, því þegar upp er staðið eru það minningar sem gera manninn. Það tekur svolítinn tíma fyrir þig að þróa þetta en þar sem þú hefur eina merkilegustu plánetu í veröldinni eins og t.d Venus í merki þínu verður það þér auðvelt. Þú ert búið til úr ást og þegar þú gefur bara ást af þér þá mun lífsins rússíbani fara með þig á ótrúlegustu slóðir. En það er samt mjög algengt að þú lendir í því að vera kýlt niður og þá getur þú ekki stjórnað för þinni almennilega. En um leið og þú sleppir tökunum og trúir að það sé þér fyrir bestu þá verður þú sigurvegari. Þú átt eftir að sjá að það er gott veður í sumar á Íslandi. Og þú átt eftir að laða að þér fólk sem þú átt eftir að betrumbæta með húmor þínum og ást. Ef þú ert á lausu þá skaltu leita þér að manneskju sem er tilfinningarík, talar skýrt og er einlæg. Þú þolir ekki óheiðarleika en átt það samt til að gefa fólki of mikinn séns. Mottóið þitt er: Carpe Diem, gríptu daginn, gríptu augnablikið eða gríptu hvað sem er. Ást og friður, Sigga KlingFræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur, Davíð Rúnar Bjarnason, boxari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Lífið Selena Gomez giftist Benny Blanco Lífið Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Lífið samstarf Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Ellefu ára læðan Lúsí ein eftir í heimilisleit hjá Kattholti Lífið Laddi 75 ára: Skapar nýja karaktera í lyftuspeglum Lífið Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Lífið Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Lífið samstarf Fleiri fréttir Selena Gomez giftist Benny Blanco Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Fréttatía vikunnar: Moulin Rouge, Blóðbankinn og Eurovision „Lætur mér líða eins og tími minn í Hollywood hafi verið ómaksins virði“ Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur Heiðar hlaut mjög virt verðlaun Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Minntist bróður síns fyrir fullum sal Leiðir skilja hjá Svala og Jóhönnu Sjá meira