Júlíspá Siggu Kling - Bogmaðurinn: Þú ert flinkasta manneskjan í svo mörgu 7. júlí 2017 09:00
Elsku Bogmaðurinn minn. Hvort sem þú veist það eða ekki ertu eins og íslenska fánastöngin, stoltur, litríkur og eitthvað sem skiptir svo miklu máli. Að sjálfsögðu hafa verið ömurlegar flækjur í lífi þínu, en þú ert akkúrat sú týpa sem kann að leysa þær og breyta í fegurð. En það skiptir miklu máli hvernig þú talar, svo breyttu orðum þínum og líf þitt breytist. Hentu út neikvæðninni sem er alveg pottþétt frá uppeldi þínu eða lífsreynslu. Þú hefur rosalegan styrk og kraft sem getur verið undirstaða að yndislegu lífi, þú hefur svo dýrmæta vináttu að bjóða og deilir tilfinningum þínum af miklum krafti. Í gamalli sögu segir af tvíburum í Bogmanninum sem báðir lentu í fangelsi. Það er svo mikilvægt að þú sért manneskja eins og annar þeirra sem sá bara stjörnurnar, ákvað að ekkert skyldi stoppa hann í að líða vel og breyta lífi annarra jákvætt, því hann hafði lært af sínum mistökum. En hinn, fæddur fimm mínútum seinna, sá bara biturð og neikvæðni; allir höfðu verið vondir við hann og hann vildi bara hefna sín. Þú ræður að sjálfsögðu hvort þú dreifir tilfinningum sem breyta lífi annarra á jákvæðan hátt eða tilfinningum sem hafa neikvæð áhrif á þig og aðra. Þú ert flinkasta manneskjan í svo mörgu, en þú þarft að setja allt jafnt á vogarskálarnar til að dæma engan, því ef þú trúir að þú sért dómarinn þá skaltu allavega hafa mildi og hlýju að leiðarljósi í því sem þú gerir. Þú getur samt haft svo mikil áhrif á fólk í kringum þig og getur látið öðrum líða eins og þeir séu einstakir. Það er mikilvægt þú veitir þeim athygli hvort sem öðrum í kringum þig þykir það fólk vera mikilvægt eða ekki. Þú færð ótal tækifæri upp í hendurnar á þessu sumri og í þessum krafti er mikilvægt að þú leikir við þá í kringum þig sem elska lífið sjálft. Þú hefur hæfileika til að elska og gefa ef þú ert jákvæði Bogmaðurinn. En ef þú átt maka sem stjórnar þér og brýtur þig niður, þá brýst fram allt það versta í þér, kannski ekki endilega núna en seinna. Þótt þú elskir frelsið, þá er best að gefa eftir í ástinni því annars verða sífelldir árekstrar. Þú ert svo tilfinningaríkur að þú þarft að elska af tilfinningu og skilyrðislaust. Þig langar til að hjálpa öllum heiminum en byrjaðu frekar á sjálfum þér og þeim sem eru næst þér. Það setja svo margir traust á þig og fólki finnst þú svo miklu merkilegri en þér sjálfum finnst þú nokkurn tímann. Svo ef þú stendur á krossgötum núna, sem er mjög líklegt, skoðaðu þá tengslanetið í kringum þig, það er sterkara en þig grunar.Það skiptir þig miklu máli að vera í formi. Ef þér finnst eins og að leti, sem er algjör óvinur þinn, sé allsráðandi og að þú fáir ekki þá hreyfingu sem þú þarfnast, þá verður hugur þinn drungalegur og Bogmaðurinn fær ekki að brjótast út eins og hann vill. En þú ert eldfjall svo haltu áfram að vera tignarlegt eldfjall, en láttu samt engan hræðast þig!Mottóið þitt er: Byrjið og hugurinn mun hressast og byrjið og verkin munu blessast.Ást og friður, Sigga KlingFrægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Lífið Selena Gomez giftist Benny Blanco Lífið Mótandi reynsla að upplifa dauðann Lífið Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Lífið samstarf Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Lífið Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Lífið samstarf Ellefu ára læðan Lúsí ein eftir í heimilisleit hjá Kattholti Lífið Fleiri fréttir Mótandi reynsla að upplifa dauðann Selena Gomez giftist Benny Blanco Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Fréttatía vikunnar: Moulin Rouge, Blóðbankinn og Eurovision „Lætur mér líða eins og tími minn í Hollywood hafi verið ómaksins virði“ Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur Heiðar hlaut mjög virt verðlaun Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Minntist bróður síns fyrir fullum sal Sjá meira