Sport

Conor og Mayweather mætast 26. ágúst

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Verður Conor svona hnarrreistur eftir bardagann 26. ágúst?
Verður Conor svona hnarrreistur eftir bardagann 26. ágúst? vísir/getty
Í kvöld var staðfest að boxbardagi þeirra Floyds Mayweather og Conors McGregor fari fram.

Bardaginn hefur verið settur á laugardaginn 26. ágúst og fer fram hann fram í T-Mobile Arena í Las Vegas.

Mayweather birti stutt kynningarmyndband fyrir bardagann á Twitter á meðan Conor skaut á bandaríska boxarann og birti mynd af sér og föður Mayweathers.

Conor og Mayweather fá væna summu fyrir bardagann en talið er að hvor um sig fái 100 milljónir dollara í sinn hlut.

Mayweather lagði hanskana á hilluna fyrir tveimur árum eftir glæsilegan feril. Hann vann alla 49 bardaga sína á ferlinum.

Conor er í fremstu röð í blönduðum bardagalistum en hann hefur aldrei boxað, hvorki sem áhugamaður né atvinnumaður. Það verður því áhugavert að sjá hvernig honum tekst til í hringnum gegn einum fremsta boxara allra tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×