Sumarspá Siggu Kling - Fiskur: Í ástinni er allt að frétta 2. júní 2017 09:00
Elsku Fiskur, þú ert að fara inn í svo spennandi og freistandi tíma og þú finnur að lífsgleðin er að magnast í þér. Sumarið þitt verður eins og hinn besti þjóðhátíðarsmellur og þú sérð lífið í öðrum litum og betra ljósi. Þú öðlast þessa innri ró sem er þér svo mikilvæg og þú tekur þetta sumar með trompi. Að sjálfsögðu verða einhverjar pestir í kringum þig en þú ert svo uppveðraður af lífinu sjálfu að það mun ekki ná neinum tökum á þér. Þú ert svo hlýr, gefandi og tilfinningasamur. Þú ert alltaf gefandi öðrum eitthvað, hvort sem um gjafir, tíma eða vinnu er að ræða. Þú gerir allt fyrir þá sem þú elskar og þetta gerir þig svo spennandi í augum annarra. Ekki reyna að draga þennan kost til baka og reyna að vera hófsamari eða segja: „ég þarf að hugsa meira um sjálfan mig“. Vinsældir þínar skapast vegna þess að þú gerir svo mikið fyrir aðra. Móðir jörð, blómin og dýrin og meira að segja himininn tengjast þér betur en nokkru sinni fyrr. Ef þér finnst þú ekki skilja þetta sem ég er að segja þarftu að muna að traust er lykillinn. Efasemdir um þig eða aðra eru pestir. Alls ekki fela viðkvæmni þína og steinhættu að reyna að vera fullkominn, það er svo hrikalega „boring“! Þó þér finnist þú eyða um efni fram gerir það ekkert til, því heppnin fylgir þér og þú færð allt svo margfalt til baka. Eftir því sem þú eldist, gengur þér betur. Það er svolítið í eðli þínu að hafa sjóð, því það er þinn öryggisventill. Þess vegna er mikilvægt að leggja það sem afgangs er inn á bók sem þú sérð ekki. Þannig kemur það þér á óvart hvað þú getur sparað án þess að hugsa of mikið um það. Allt sem tengist vatni skiptir svo miklu máli ef þig vantar orku, þú ert náttúrulega fiskur – farðu í sund, sittu við sjóinn á þínum eigin sérstaka stað. Hentu áhyggjunum í sjóinn, snúðu við, farðu heim, og sjáðu að það breytist eitthvað. Bara að fara í bað eða sturtu og nýta þér allt það vatn sem þú getur mun breyta orku þinni Í ástinni er allt að frétta, því þú elskar. Og ef þú lítur í spegil sérðu að þú hefurðu aldrei litið jafn vel út.Mottó: Hafðu stóra drauma, því ef þig hættir að dreyma hættir þú að lifa.Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Hún er komin til að vera“ Tónlist Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Fleiri fréttir Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu