Íþróttadeild 365 spáir Fjölni 6. sæti Pepsi-deildarinnar í ár sem er tveimur sætum neðar en liðið hafnaði á síðasta ári. Fjölnismenn náðu sínum besta árangri frá upphafi síðasta sumar þegar þeir náðu fjórða sætinu með 37 stigum en því miður fyrir þá misstu þeir af Evrópusæti á lokametrunum.
Þjálfari Fjölnis er Ágúst Gylfason sem hefur náð ótrúlegum árangri með Fjölnisliðið á undanförnum árum. Sama hversu oft Grafarvogsstrákarnir eru afskrifaðir bætir Ágúst bara í og var með liðið í Evrópubaráttu allt síðasta sumar. Ágúst kom Fjölni upp um deild og er búið að gera það að stöðugu úrvalsdeildarliði.
Mögulegt byrjunarlið

Það er alltaf mjög erfitt að fara til Eyja og svo mætir lið sem ætlar sér að minnsta kosti í Evrópubaráttu í heimsókn í fyrsta heimaleik.
Fjölnisliðið er svolítið breytt og kemur veikara til leiks í ár þannig ef Ágúst nær ekki að stilla strengina í byrjun móts gæti farið illa fyrsta mánuðinn.
30. apr: ÍBV – Fjölnir, Hásteinsvöllur
8. maí: Fjölnir – Breiðablik, Extra-völlurinn
14. maí: KA – Fjölnir, Akureyrarvöllur
22. maí: FH – Fjölnir, Kaplakriki
28. maí: Fjölnir – Stjarnan, Extra-völlurinn
Þrír sem Fjölnir treystir á

Hans Viktor Guðmundsson: Það er mikil ábyrgð sett á þennan tvítuga miðvörð sem kom eins og stormsveipur inn í vörnina hjá Fjölni á síðustu leiktíð. Hann naut sín við hliðina á Daniel Ivanovski og Tobias Salquist sem eru báðir farnir. Viðar Ari Jónsson er einnig farinn í atvinnumennsku þannig kvarnast hefur úr varnarlínu Fjölnis svo um munar. Hans Viktor hefur alla burði til að taka yfir í vörninni og vera leiðtoginn sem liðið þarf en hann er fyrirliði liðsins.
Þórir Guðjónsson: Rauða þruman í framlínunni er búinn að vera einn af skæðustu sóknarmönnum Pepsi-deildarinnar undanfarin tvö ár eftir að hann jafnaði sig á erfiðum meiðslum. Þórir skoraði sjö mörk í fyrra og sjö mörk þar áður fyrir utan það sem hann skapar fyrir liðið. Fjölnisliðið skoraði 42 mörk í fyrra en Þórir þarf líklega að rjúfa múrinn sem er að skora tíu mörk er fyrir sína menn í sumar ætli þeir að eiga svipaða leiktíð og í fyrra.
Nýstirnið
Ægir Jarl Jónasson er 19 ára gamall sóknartengiliður sem spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Fjölni sumarið 2015. Hann á 17 leiki að baki fyrir Fjölni í Pepsi-deildinni, þar af fjórtán í fyrra, en alla sem varamaður.Ægir hefur æft gríðarlega vel í vetur og kemur til leiks í svakalegu formi. Hann er ótrúlega sterkur á boltann með mikla yfirsýn og góðar sendingar.
Þar sem lykilmenn eru farnir frá Fjölni gæti hlutverk Ægis verið töluvert stærra en upphaflega var ætlað fyrir sumarið og nú er það hans að nýta það.
Markaðurinn

Bojan Stefán Ljubicic frá Keflavík
Igor Taskovic frá Víkingi R.
Ivaca Dzolan frá Króatíu
Farnir:
Daniel Ivanovski
Guðmundur Karl Guðmundsson í FH
Guðmundur Böðvar Guðjónsson í ÍA
Martin Lund Pedersen í Breiðablik
Ólafur Páll Snorrason í FH
Tobias Salquist (Var í láni)
Viðar Ari Jónsson í Brann
Fjölnir er líklega það lið sem hefur farið allra verst út úr leikmannamarkaðnum í vetur. Gæðin sem eru farin út úr liðinu eru töluvert meiri en eru komin inn.
Þrír af allra bestu mönnum liðsins eru farnir; varnarmennirnir Tobas Salquist og Viðar Ari Jónsson. Þá er Martin Lund Pedersen, sem skoraði tíu mörk og lagði upp fimm á síðustu leiktíð, farinn í Breiðablik. Ólafur Páll Snorrason gerðist aðstoðarþjálfari FH og fyrirliðinn Guðmundur Karl Gunnarsson fylgdi sömu leið.
Á móti eru komnir Igor Taskovic sem var lélegur með Víkingi í fyrra og virðist alveg búinn og Bojan Stefán Ljubicic sem hefur ekki verið í lykilhlutverki hjá Keflavík undanfarin ár. Ivaca Dzolan er svo nýliði í Pepsi-deildinni en honum eru ætlaðir stórir hlutir.
Í staðinn fyrir að fá marga nýja leikmenn til liðsins ætlar Ágúst Gylfason að treysta á unga og mjög efnilega leikmenn Fjölnisliðsins sem margir hverjir eru unglingalandsliðsmenn.
Hvað segir Hjörvar?

„En Fjölnismenn þekkja það vel að mæta til leiks með mikið breytt lið. Það er ekki ný staða fyrir þá. Þó kæmi mér ekki á óvart ef að Fjölnir myndi að þessu sinni lenda í vandræðum og reikna ég með Fjölinsmönnum í neðri hluta deildarinnar.“
Hann segir að Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, hafi margsinnis náð að gera vel úr sínu í Grafarvoginum. „Hann er búinn að sanna sig sem þjálfari og hefur komið á stöðugleika í Fjölni. Alltaf hefur honum tekist að búa til nýjar stjörnur í Fjölni þegar hinar, sem hann bjó til, eru farnir.“
Að lokum

Spurningamerkin eru ... varnarleikurinn til að byrja með. Liðið er búið að missa þrjá frábæra varnarmenn og fyrirliðinn er tvítugur. Fjölnisliðið fékk aðeins eitt mark á sig í Reykjavíkurmótinu og það var sjálfsmark en síðan fór að halla undanfæti í Lengjubikarnum þar sem Fjölnir fékk á sig fjórtán mörk í fimm leikjum og vann aðeins einn. Munu ungu strákarnir ná upp stöðugleika og skila þeim mörkum sem Martin Lund Pedersen skilur eftir sig.

Í versta falli: Kemur í ljós að Fjölnisliðið hefur einfaldlega misst of góða leikmenn. Ágústi gengur illa að finna liðið sitt í byrjun móts þar sem það á mjög erfiða leiki og stigasöfnun gæti verið slæm í maí. Fjölnisliðið er aldrei að fara að falla, gleymið því, en það gæti gælt við fallbaráttu framan af sumri ef allt fer á versta veg.