Sósíalistaflokkurinn byrjar með látum Jakob Bjarnar skrifar 11. apríl 2017 12:58 Gunnar Smári. Það er líklega að renna upp fyrir fleirum en mér að það þýðir ekkert að tala við auðvaldið um breytingar. Almenningur þarf að rísa upp og fleygja því út úr valdastofnunum samfélagsins alda lóa „
Nýjar tölur eru 492. Eftir 13 tíma, blánóttin meðtalin,“ segir Gunnar Smári Egilsson stofnandi Sósíalistaflokks Íslands. Seint í gærkvöldi opnaði hann vefsíðu þar sem fólki gefst kostur á að skrá sig í hinn nýja stjórnmálaflokk. Og hann er kátur með viðtökurnar. „Aldrei hefur það gerst í sögu lands og þjóðar að jafn margir landsmenn hafi gengið í nokkurn stjórnmálaflokk á jafn skömmum tíma,“ fullyrðir Gunnar Smári vígreifur.Samfélag hinna betur settuSósíalistaflokkurinn virðist þannig falla í frjóan svörð. Hvað veldur því að nú virðist lag með flokk af þessu tagi? „Almenningur hefur krafist og barist fyrir róttækum samfélagsbótum frá Hruni en ekki fengið,“ segir Gunnar Smári. Og hann heldur áfram: „Þeir flokkar sem fólk hefur lagt traust sitt á hafa allir meira og minna tekið upp stefnumál Sjálfstæðisflokksins um aðstoð við hina betur settu en niðurskurð réttinda og stuðnings við hina verr stæðu. Sósíalistaflokkurinn byggir á einfaldri og skýrri sýn sósíalista um að ekki verði hægt að ná fram breytingum á samfélaginu sem gagnast almenningi nema með stéttabaráttu, að þeir sem hafa orðið undir óréttlátu kerfi sameinist um að hrinda því af sér.“Bylta þarf óréttlátu kerfinuGunnar Smári segir tíma samræðunnar eða samræðustjórnmála liðinn: „Það er orðið ljóst að auðvaldið mun ekki fallast á betri lausnir þótt þeim sé veifað fyrir framan það. Auðvaldið hlýðir ekki einu sinni meirihlutavilja kjósenda í kosningum, eins og sést af örlögum stjórnarskrárinnar. Það er því líklega að renna upp fyrir fleirum en mér að það þýðir ekkert að tala við auðvaldið um breytingar. Almenningur þarf að rísa upp og fleygja því út úr valdastofnunum samfélagsins; út úr ríkisstjórn, út af Alþingi, út úr sveitastjórnum, út úr lífeyrissjóðunum og út úr stofnunum ríkis og sveitarfélaga, sem eiga að þjóna almenningi en þjóna í dag aðeins hinum allra best settu.“Auðvaldið ætti að grípa um pyngjuna Brauðmolakenningin svokölluð (e. Trickle Down Theory), sem gengur út á að þeim mun ríkari sem þeir ríku verða þeim mun betra sé það fyrir hina snauðu, brauðmolar hljóti að hrökkva af allsnægtaborðinu til hinna soltnu, hefur verið einn helsti þráður í kenningum prófessors Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Hannes hefur verið einn helsti hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins áratugum saman. Nú er svo komið að menn hafa hana fremur í flimtingum en hitt; fyrir liggur að auður heimsins safnast stöðugt á færri hendur. Framleiðni minnkar og auðkýfingar sjálfir eru sumir hverjir farnir að vara við henni; þetta hljóti að enda með byltingu. Er sú bylting hafin?„Ef ég væri auðvaldið myndi ég grípa um pyngjuna. Og hjartað, ef það væri til staðar.“Vinstri flokkarnir einnig hallir undir brauðmolakenningunaEn, margir spyrja sig hvers vegna ekki að ganga fremur til liðs við þá vinstri flokka sem fyrir eru á fleti? Eru þeir flokkar á villigötum? „Brauðmolakenningin er leiðarljós vinstri flokkana ekkert síður en Sjálfstæðisflokksins. Þetta sést ágætlega hjá meirihlutanum í Reykjavík. Þar er húsnæðisstefnan sú að byggja fyrst fyrir þá sem eiga mestan pening í von um að þeir næst ríkustu geti flutt inn í húsnæðið sem þeir skilja eftir og svo koll af kolli þar til hinn fátæki öryrkinn fær loks íbúð. Sósíalistaflokkurinn mun reka húsnæðisstefnu sem snýr að því að útvega fyrst húnæði þeim sem eru í mestum vanda og sárustu neyð. Það myndi allt heiðvirt fólk gera. Nýfrjálshyggjan og brauðmolakenningin hefur fjarlægt valdafólk svo eðlilegri samkennd og mannvirðingu að kerfi sem það rekur stríðið gegn réttlætiskennd fólks.“Samfylkingin skaðræðisskepnaMargir spyrja sig hvort enn einn flokkurinn sem skilgreinir sig til vinstri sé ekki fremur til að draga úr sameiningarmættinum? Gunnar Smári segir að ekkert hefur dregið jafn mikið úr afli vinstri hluta íslenskra stjórnmála, þess hluta sem rímar best við lífsafstöðu flestra landsmanna, en þetta eilífa sameiningartal. „Samfylkingin er mesta eyðingarafl vinstursins og varð völd að stórkostlegum skaða. Fólk á ekki að tala sameiningu fram yfir baráttuna, moðið í staðinn fyrir stefnuna og undanhaldið í staðinn fyrir sóknina. Auðvitað má fólk gera það, það fer þá bara í Samfylkinguna. En Sósíalistaflokkurinn verður fyrir hitt fólkið.“
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira