Bréf til þín Jón Gunnarsson Þórður Már Þorsteinsson skrifar 20. mars 2017 10:01 Það er öllum venjulegum Íslendingum ljóst að vegakerfið hér á landi er komið að þolmörkum, og vonandi er þér það ljóst líka, herra Jón. Framlag til nýframkvæmda í vegagerð er lægra hérlendis en í löndunum sem við berum okkur saman við. Reyndar var það þannig fyrir stuttu síðan að það var lægra en hafði verið í 30 ár sem hlutfall af landsframleiðslu. Svona getur þetta ekki gengið lengur, Jón minn. Ríkisstjórn þín verður að gera eitthvað í málinu. Þjóðin krefst þess. Þú verður reyndar að fyrirgefa mér þó ég sé sljór að eðlisfari, og geti ekki skilið, þegar þið stjórnmálamenn segið okkur vera eina ríkustu þjóð heims. Svo ríka, að á fjárlögum er ekki pening til að viðhalda grunnstoðum samfélagsins. Hvort við erum rík eða fátæk, Jón minn, það get ég því miður ekki sagt þér, ég er orðinn svo ruglaður í þessu öllu. Hitt veit ég Jón, að hingað koma margir ferðamenn. Þeir koma með fullt af peningum til okkar. Margir fleiri fara líka um Leifsstöð. Þarna er tilvalin uppspretta eilítillar skattlagningar, t.d. með komugjöldum, sem bæði ferðamenn og heimamenn myndu glaðir borga, fyrir aðgang að landinu, til verndar ferðamannastöðum, og til uppbyggingar innviðanna svo sem tl vegaframkvæmda. Því miður er of seint að innheimta þessi gjöld fyrir sumarið og miðað við orð þín í viðtali á Bylgjunni nýverið, þá eru ekki til peningar í ríkiskassanum fyrir framkvæmdunum. Því legg ég nú til, herra Jón, að þú takir lán fyrir hönd ríkisins, upp á 10-20 milljarða eða eitthvað slíkt, svo hægt sé að einhenda sér í framkvæmdir næsta sumar. Þetta lán væri svo hægt að greiða hratt niður með skattlagningu á flugmiða eða slíku. Um það er mun meiri sátt meðal þjóðarinnar en um vegtollana þína, það get ég sagt þér, þrátt fyrir sljóleika minn. Drífðu nú í að taka þetta lán Jón minn Gunnarsson, við erum nú þegar tilbúnir með tækin. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Sjá meira
Það er öllum venjulegum Íslendingum ljóst að vegakerfið hér á landi er komið að þolmörkum, og vonandi er þér það ljóst líka, herra Jón. Framlag til nýframkvæmda í vegagerð er lægra hérlendis en í löndunum sem við berum okkur saman við. Reyndar var það þannig fyrir stuttu síðan að það var lægra en hafði verið í 30 ár sem hlutfall af landsframleiðslu. Svona getur þetta ekki gengið lengur, Jón minn. Ríkisstjórn þín verður að gera eitthvað í málinu. Þjóðin krefst þess. Þú verður reyndar að fyrirgefa mér þó ég sé sljór að eðlisfari, og geti ekki skilið, þegar þið stjórnmálamenn segið okkur vera eina ríkustu þjóð heims. Svo ríka, að á fjárlögum er ekki pening til að viðhalda grunnstoðum samfélagsins. Hvort við erum rík eða fátæk, Jón minn, það get ég því miður ekki sagt þér, ég er orðinn svo ruglaður í þessu öllu. Hitt veit ég Jón, að hingað koma margir ferðamenn. Þeir koma með fullt af peningum til okkar. Margir fleiri fara líka um Leifsstöð. Þarna er tilvalin uppspretta eilítillar skattlagningar, t.d. með komugjöldum, sem bæði ferðamenn og heimamenn myndu glaðir borga, fyrir aðgang að landinu, til verndar ferðamannastöðum, og til uppbyggingar innviðanna svo sem tl vegaframkvæmda. Því miður er of seint að innheimta þessi gjöld fyrir sumarið og miðað við orð þín í viðtali á Bylgjunni nýverið, þá eru ekki til peningar í ríkiskassanum fyrir framkvæmdunum. Því legg ég nú til, herra Jón, að þú takir lán fyrir hönd ríkisins, upp á 10-20 milljarða eða eitthvað slíkt, svo hægt sé að einhenda sér í framkvæmdir næsta sumar. Þetta lán væri svo hægt að greiða hratt niður með skattlagningu á flugmiða eða slíku. Um það er mun meiri sátt meðal þjóðarinnar en um vegtollana þína, það get ég sagt þér, þrátt fyrir sljóleika minn. Drífðu nú í að taka þetta lán Jón minn Gunnarsson, við erum nú þegar tilbúnir með tækin.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar