Talið að hundruð almennra borgara hafi látið lífið í loftárásum í Mosul Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. mars 2017 09:50 Rannsókn mun fara fram á miklu mannfalli almennra borgara í Mosul í mars. Vísir/AFP
Sameinuðu þjóðirnar telja að allt að 200 almennir borgarar hafi látið lífið í flugárásum Bandaríkjamanna, í íröksku borginni Mosul, þar sem hörð átök geysa um þessar mundir á milli öryggisveita Íraka og hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkisins. Öryggissveitir Íraka eru studdar af Bandaríkjamönnum, sem varpað hafa gífurlegum fjölda sprengja á borgina, en átökin nú geysa í vesturhluta borgarinnar þar sem götur eru afar þröngar og stutt á milli húsa. Samkvæmt upplýsingum fulltrúa Sameinuðu þjóðanna á svæðinu er talið að allt að 50 lík almennra borgara hafi verið dregin út úr hrundum byggingum á föstudag, sem sprengjum var varpað á fyrr í mars. Er það talið gefa til kynna hve hátt mannfallið sé. Að sögn heimildamanna New York Times innan bandaríska hersins mun fara fram rannsókn á fregnum af miku mannfalli meðal almennra borgara í loftárásum milli 17-23. mars. Sameinuðu þjóðirnar telja að allt að 400 þúsund almennra borgara séu eftir í íröksku borginni en talið er að rúmlega 180 þúsund manns hafi tekist að flýja borgina. Talið er að um 2000 vígamenn séu eftir í borginni.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins