Hvernig endar þetta? Marinó Örn Ólafsson skrifar 24. febrúar 2017 08:00 Fyrir stuttu sat ég í bíl með föður mínum og ræddi við hann um hefðir og venjur fjölskyldunnar. Sumar þeirra finnst mér undarlegar og ég fer ekkert leynt með það. Ég hafði meira að segja orð á því að í framtíðinni myndi ég breyta þessu á mínu heimili! Pabbi hafði ekki mikla trú á þessu og sagði að lokum: „Þú gerir þetta eins og fyrir þér hefur verið haft, það endar alltaf þannig.“ Það endar alltaf þannig. Ég svaraði ekki en innst inni vissi ég að líklegast hefði hann á réttu að standa. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft, eins og frægt er. Því lengra sem líður frá þessum samskiptum okkar þeim mun meira hugsa ég um þetta. Á síðustu dögum hefur hugmyndin þó þróast aðeins. Hvað er það sem Ísland hefur fyrir börnunum sínum? Læra börn Íslands einhverja vitleysu í dag? Lítum á stöðu ungs fólks á Íslandi. Margt ungt fólk sér ekki fram á að geta flutt að heiman vegna aðstæðna á fasteigna- og leigumarkaði. Þetta er óviðunandi ástand sem þarf að finna lausnir á, hvort sem það eru markaðslausnir, aukin bygging félagslegra íbúða, aukin félagsleg aðstoð, breyting á fyrirkomulagi vaxtabóta eða aukið framboð á íbúðarhúsnæði. Lausnirnar þurfa bara að virka. Kaupmáttur 16-19 ára fólks hefur farið minnkandi og ekki virðist staðan ætla að batna. Kjarasamningar SA kveða á um að 18 og 19 ára unglingar (fullorðnir einstaklingar) fái 95% grunnlaun tvítugs fólks. Þetta bætir ekki stöðu þeirra. Ákvæði um 95% grunnlaun 48 ára og 49 ára fólks félli ekki jafnvel í kramið hjá samninganefndum og þetta, þó ákvæðin séu hin sömu í grunninn. Skólafólk er mestmegnis ungt fólk. Einungis á grundvelli þess er næstum hægt að fullyrða að ástandið í skólakerfinu okkar sé ekki til fyrirmyndar. Í grunnskólunum er gríðarlegt álag á kennurum og það ásamt lágum launum þeirra bitnar á gæðum menntunarinnar. Margir framhaldsskólar halda að sér höndum vegna fjárskorts, sem bitnar einna helst á iðnnámi og verklegum greinum. Í þokkabót hefur fólki eldra en 25 ára verið gert mjög erfitt fyrir að nema í framhaldsskólum. Í háskólunum er ástandið ekki gott heldur. Rektor Háskóla Íslands telur ekki ólíklegt að taka þurfi upp skólagjöld eða fækka námsleiðum. Bjarni Benediktsson sagði ríkisstofnunum að hætta að væla og fyrrverandi menntamálaráðherra sagði PISA niðurstöður íslenskra grunnskólabarna slæmar því prófið mælir ekki sköpun og félagsgreind meðal annars. Sami maður vildi breyta námslánakerfinu svo fólk sækti í „arðbært nám“ og fjársvelti Listaháskólann í sinni tíð sem menntamálaráðherra. Sköpunargáfan skipti hann ekki meira máli en það. Fjárfestum í menntun unga fólksins okkar, það er arðbær fjárfesting. Ég þori ekki að spá fyrir um hvernig fer ef mín kynslóð gerir eins og fyrir henni hefur verið haft. Ég væri að minnsta kosti ekki til í að vera tvítugur árið 2040 ef svo fer. Bæta þarf stöðu ungs fólks svo það vilji vera áfram á Íslandi. Af hverju ætti maður sem ekki getur sótt sér þá menntun sem hann vill, býr við lakari lífskjör en aðrir á landinu og glímir við erfiða fasteignamarkaði að vilja búa á Íslandi? Gerum unga fólkinu okkar kleift að koma þaki yfir höfuð sér. Styrkjum menntakerfið okkar svo fólk allsstaðar á landinu geti sótt sér háskólagráður, stúdentspróf og hvers kyns iðnmenntun. Eflum nýsköpun til að tryggja framfarir og atvinnumöguleika til framtíðar. Það liggur í augum uppi að það stofnar enginn fyrirtæki sem sér menntuðu fólki fyrir vinnu ef það er ekki til menntað fólk til að vinna þau störf. Menntun er grundvöllur nýsköpunar, sem stuðlar að tækniframförum og hagvexti. Tökum á þessum málum strax, svo það verði ekki eðlilegt að staða ungs fólks á Íslandi sé alltaf léleg. Annars eigum við á hættu að missa það úr landi og þá er enginn eftir til að halda hér hagkerfinu gangandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Baslað í fyrirmyndarbænum Karl Pétur Jónsson Skoðun Hverfið mitt í Reykjavík 2018 Halldór Auðar Svansson Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson skrifar Skoðun Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarmorðið í Palestínu Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Sjá meira
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar