Leyfi Sorpu til urðunar að Álfsnesi fellt úr gildi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 27. febrúar 2017 06:00 Frá urðun í Álfsnesi. vísir/valli
Úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál hefur fellt úr gildi ákvörðun Umhverfisstofnunar, frá í ágúst 2014, um að veita starfsleyfi fyrir Sorpu í Álfsnesi að því er varðar urðun. Urðunarstaðurinn tekur við nær öllu sorpi af höfuðborgarsvæðinu sem á að urða. Ástæðan fyrir ógildingunni er sú að í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030 stendur að stefnt sé að því að hætta að urða rusl í Álfsnesi innan 4-5 ára frá undirritun eigendasamkomulags. Það samkomulag var undirritað 25. október 2013. Starfsleyfi Sorpu til urðunar var hins vegar til ársloka 2020. Taldi nefndin að Umhverfisstofnun væri bundin af áðurnefndu eigendasamkomulagi og hefði því ekki getað veitt svo langt starfsleyfi. Því var það fellt úr gildi. „Sorpa er í raun bara þolandi í þessu máli,“ segir Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu. „Við uppfyllum öll skilyrði starfsleyfis og það er ekki við okkur að sakast.“ Að sögn Björns myndu menn fljótt verða varir við það ef það dregst á langinn að Sorpa fái starfsleyfi að nýju þar sem enginn annar á höfuðborgarsvæðinu tekur við úrgangi til förgunar. „Við höfum nú þegar sótt um undanþágu frá starfsleyfi til umhverfisráðherra og vonum að það fari í gegn á stuttum tíma,“ segir Björn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Innlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Erlent Byrjaðir að kenna hvor öðrum um stöðvun ríkisreksturs Erlent Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Innlent Fleiri fréttir Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Sjá meira