Djúp lægð veldur vaxandi vindi eftir hádegi Birgir Olgeirsson skrifar 8. janúar 2017 07:35 Það gengur í austan 13-20 m/s á sunnanverðu landinu seint í dag og rigning eða slydda fylgir. Vísir/Ernir
Nú í morgunsárið er vaxandi lægð djúpt suðvestur af landinu sem nálgast og veldur vaxandi vindi eftir hádegi. Það gengur í austan 13-20 m/s á sunnanverðu landinu seint í dag og rigning eða slydda fylgir, en hægari vindur fyrir norðan og dálítil snjókoma. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst. Gengur síðan í norðaustan storm með hríð á Vestfjörðum seint í kvöld og víðar um norðanvert landið í nótt. Áðurnefnd lægð fer til austurs fyrir sunnan land og verður hún væntanlega stödd suður af Hornafirði í fyrramálið. Það þýðir að vindur á morgun verður norðlægari, hvassviðri eða stormur um mestallt land. Úrkomulítið sunnantil, annars snjókoma, talsverð um landið norðaustanvert. Akstursskilyrði geta orðið erfið og/eða færð spillst. Fer að draga úr vindi og úrkomu seint á morgun, fyrst vestanlands. Kólnar smám saman þegar kemur fram á morgundaginn þegar kaldara loft úr norðri færist yfir landiðVeðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:Minnkandi vindur með morgninum og úrkomulítið. Gengur í austan 10-15 seinnipartinn með rigningu, en 13-18 í kvöld. Hiti 1 til 5 stig. Lægir í nótt, en snýst í norðan 8-15 á morgun með þurrviðri og kólnar smám saman.Horfur næsta sólarhringinn á öllu landinu:Vaxandi vindur eftir hádegi. Austan 13-20 m/s á sunnanverðu landinu seint í dag og rigning eða slydda, en hægari fyrir norðan og dálítil snjókoma. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst. Gengur í norðaustan 18-23 með snjókomu á norðanverðu landinu seint í kvöld og í nótt, fyrst á Vestfjörðum.Norðaustan og norðan hvassviðri eða stormur um mestallt land á morgun. Úrkomulítið sunnantil, annars snjókoma, talsverð um landið norðaustanvert. Fer að draga úr vindi og úrkomu seint á morgun, fyrst vestanlands. Kólnandi veður.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag: Norðaustan og norðan 15-23 m/s. Úrkomulítið sunnantil, annars snjókoma, talsverð um landið norðaustanvert. Fer að draga úr vindi og úrkomu seinnipartinn, fyrst vestanlands. Frost 0 til 4 stig, en frostlaust við suður- og austurströndina fram eftir degi.Á þriðjudag:Fremur hæg breytileg átt, en norðaustan 8-13 með norðurströndinni. Dálítil él norðan- og austanlands, annars úrkomulaust. Líkur á snjókomu sunnanlands um kvöldið. Frost 1 til 7 stig.Á miðvikudag og fimmtudag:Norðlæg átt og él um landið norðanvert, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Kólnandi veður.Á föstudag og laugardag:Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Sums staðar dálítil él við sjávarsíðuna, annars léttskýjað með köflum. Mjög kalt á landinu.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira