Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út vegna neyðarblysa Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 9. janúar 2017 00:36 Þyrla Landhelgisgæslunnar í sjúkraflugi árið 2015. Vísir/Pjetur
Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í kvöld eftir að tvær neyðarsólir sáust á lofti nærri Höfnum á Suðurnesjum. Lögreglu barst tilkynning um sólirnar á níunda tímanum. Sá sem tilkynnti var staddur á Grænásbraut í Reykjanesbæ. Hann sagði sólirnar á suðvesturhimninum en taldi þær líklega nær sér en Höfnum. Ákveðið var að kalla út TF-LÍF og björgunarsveitir til að kanna málið betur og sannreyna hvort um raunverulegt neyðarkall væri að ræða. Þyrlan fór í loftið klukkan hálftíu. Eftir nokkra leit á svæðinu frá Garðskaga að Reykjanestá þótti ljóst að blysunum hefði verið ekki verið skotið upp út af Höfnum heldur benti allt til að þeim hefði verið skotið af landi. TF-LÍF lenti aftur í Reykjavík klukkustund síðar. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að gæslan og aðrir viðbragðsaðilar taki allar tilkynningar um neyðarblys á lofti mjög alvarlega enda eru þau eitt mikilvægasta úrræði sjófarenda og annarra til að kalla eftir aðstoð í neyð. Vill Landhelsgisgæslan því brýna fyrir fólki að skjóta ekki upp flugeldum, nú þegar jólahátíðinni er lokið. Öll notkun flugelda er bönnuð eftir 6. janúar, meðal annars til að koma í veg fyrir atvik eins og í kvöld.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fleiri fréttir Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Sjá meira