Aðventupítsa fyrir huggulegar stundir Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 8. desember 2017 11:30 Bjargey með gómsæta aðventupítsu þar sem ristaðar hunangshnetur gera útslagið. MYND/ANTON BRINK
Bjargey Ingólfsdóttir hefur í hávegum að aðventan er tími töfrandi samveru og jólaundirbúnings, rétt eins og gleðileg jólahátíðin. Hún kann þá list betur en margur að gera hvern dag að ævintýri og klæðir hvunndagspítsur í freistandi aðventubúning. „Ég er hrifin af því að gera hátíðarútgáfur af venjulegum mat og það er svo margt við þessar pítsur sem minnir mig á jólin,“ segir Bjargey Ingólfsdóttir, sem gefur lesendum uppskriftir að tveimur ómótstæðilegum pítsum sem gott er að njóta á aðventunni og um hátíðarnar. Bjargey er húsmóðir í Kópavogi og þriggja barna móðir. Hún hlakkar til að eiga jólafrí með fjölskyldunni, vera saman á náttfötunum, spila og gera eitthvað skemmtilegt saman. „Ég vil frekar slaka á með börnunum, föndra og fá okkur heitt kókó heldur en að standa í stórhreingerningum eða jólastressi í umferðinni og búðum. Þetta er tími til að njóta og slaka á með ástvinum. Við höldum í ýmsar jólahefðir, eins og að skera út laufabrauð með stórfjölskyldunni og horfa á jólamyndina Christmas Vacation áður en farið er í háttinn á Þorláksmessu.“Bjargey kann þá list vel að leggja fallega á borð og skreyta í kringum sig.MYND/ANTON BRINKBjargey byrjar snemma að huga að jólagjöfum og skreytingum, enda heldur hún úti vinsælu bloggi þar sem hún gefur lesendum sínum hugmyndir og uppskriftir sem veita innblástur í jólaundirbúninginn. „Mínar bestu minningar eru úr barnæskunni. Mamma gerði alltaf svo mikið með okkur systkinunum fyrir jólin og ég man hvað ég varð glöð þegar ég mátti skreyta herbergið mitt og jólaljósin voru sett út í glugga. Samverustundirnar standa upp úr og þannig vil ég að mín börn muni eftir sínum jólum; hvað það var gaman að njóta hátíðanna saman.“Hægt er að fylgjast með jólaundirbúningi Bjargeyjar og fjölskyldu á bjargeyogco.com og á Snapchat undir bjargeyogco.Það er dásamlegt að gera sér glaðan dag á aðventunni með hátíðlegri útgáfu af hvunndagsmat eins og þessari pítsu.MYND/ANTON BRINKAðventupítsa Bjargeyjar & coPítsabotn Pítsasósa Rifinn ostur Hráskinka Mozzarella-ostakúlur Klettasalat Ristaðar hunangshneturBakið pítsabotn að eigin vali, heimagerðan eða beint úr búðinni. Setjið pítsasósu á botninn og rifinn ost. Bakið við 200°C í 10 mínútur. Takið bakaða pítsuna úr ofninum og setjið mozzarella-kúlur, klettasalat og hráskinku yfir. Stráið að síðustu ristuðum hunangshnetum yfir en þær gefa pítsunni dásamlegt jólabragð.Hátíðapítsa Bjargeyjar með kalkún, döðlum, mascarpone-rjómaosti og sultuðum lauk er ómótstæðileg bragðupplifun.MYND/ANTON BRINKHátíðapítsa Bjargeyjar & coPítsabotn Pítsasósa Fullelduð kalkúnabringa Rifinn ostur Döðlur Sultaður rauðlaukur Mascarpone-rjómaostur Klettasalat á toppinnMagn af áleggi fer eftir smekk hvers og eins, og er tilvalið að nota afganga af hátíðarkalkún. Búið til sultaðan rauðlauk með því að steikja rauðlauk upp úr íslensku smjöri og púðursykri þar til laukurinn er orðinn mjúkur og með karamelluáferð. Bakið pítsuna með kalkún, osti, döðlum og mascarpone við 200°C í 10 mínútur eða þar til hún er tilbúin. Setjið sultaðan rauðlauk og klettasalat á toppinn og njótið vel!Þessi grein birtist fyrst í Jólablaði Fréttablaðsins 28. nóvember 2017.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sjá meira