Rússnesk yfirvöld íhuga að banna Fríðu og dýrið vegna „samkynhneigðs áróðurs“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. mars 2017 19:59 Emma Watson fer með hlutverk Fríðu og Dan Stevens fer með hlutverk dýrsins Vísir/Skjáskot
Rússnesk yfirvöld eru nú undir þrýstingi af hálfu þingmanna rússneska þingsins, sem krefjast þess að kannað verði hvort að kvikmyndin Beauty and the Beast brjóti lög landsins sem banna „samkynhneigðan áróður.“ Þau hafa það nú til skoðunar. BBC greinir frá.Um er að ræða leiknu endurgerðina af Beauty and the Beast, með Emmu Watson í aðalhlutverki, sem væntanleg er í kvikmyndahús á næstunni. Í kvikmyndinni er fyrsti samkynhneigða persónan í sögu Disney og kemur viðkomandi persóna meðal annars fram í ástarsenu í myndinni. Rússneski þingmaðurinn Vitaly Milonov hefur sagt að kvikmyndin sé „helber syndaáróður“ og þá hefur menningarráðherra landsins, Vladimír Medinsky sagt að yfirvöld muni að öllum líkindum grípa til aðgerða vegna þessa. Lögin sem myndin er talin brjóta voru lögð á árið 2013 og banna að „samkynhneigðum áróðri sé haldið að börnum þar í landi.“ Kvikmyndin á að koma út í Rússlandi þann 16. mars næstkomandi en Milonov hefur kallað eftir því að myndin verði alfarið bönnuð ef að hún brýtur gegn umræddum lögum.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira