Mál sextán ára samkynhneigðs hælisleitanda tekið til efnislegrar meðferðar Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 6. júní 2017 19:47 Lögfræðingur Rauða krossins segir mál drengsins hafa sérstöðu umfram önnur mál hælisleitenda hér á landi.
Kærunefnd útlendingamála komst í dag að þeirri niðurstöðu að hælisumsókn sextán ára marokkósks drengs og bróður hans skuli teknar til efnislegrar meðferðar. Lögfræðingur Rauða krossins segir mál drengsins hafa sérstöðu umfram önnur mál hælisleitenda hér á landi. Drengurinn kom hingað til lands frá Spáni í lok nóvember á síðasta ári ásamt eldri bróður sínum sem er yfir átján ára aldri en þangað höfðu þeir flúið heimalandið vegna hættu á ofsóknum, en yngri bróðirinn er samkynhneigður. Samkynhneigð í heimalandi þeirra, Marokkó er ólögleg bæði í lagalegum og trúarlegum skilningi og hafa þeir sem viðurkennt hafa samkynhneigð þar í landi orðið fyrir ofsóknum og útskúfun frá samfélaginu og jafnvel dæmdir til fangelsisvistar. Útlendingastofnun synjaði hælisbeiðni bræðranna í maí og var sú ákvörðun kærð til kærunefndarinnar.Sjá einnig: Sextán ára fylgdarlausum dreng vísað úr landiArndís Anna K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur og talsmaður hælisleitenda.„Kærunefndin felldi úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í báðum málunum og fyrirskipaði að umsóknir beggja yrðu teknar til efnislegrar meðferðar á Íslandi,“ segir Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur og talsmaður hælisleitenda hjá Rauða krossi Íslands. „Það þýðir að þeir verða boðaðir til viðtals hjá Útlendingastofnun þar sem þeir verða spurðir út í ástæður þess að þeir yfirgáfu heimaland sitt, sem þeir hafa ekki verið spurðir út í hingað til. Þá verður metið hvort þeir uppfylli skilyrði stöðu flóttamanns eða viðbótarverndar eða mannúðarleyfis vegna aðstæðna í Marokkó.“ Arndís segir að efnisleg meðferð slíkra mála hafi undanfarið verið að dragast innan Útlendingastofnunar og gerir hún ráð fyrir að málið muni taka minnst þrjá mánuði. Hún segir að staða bræðranna sé mjög óljós. „Hún er í rauninni óljós vegna þess að fólki er ekki veitt vernd vegna almennra aðstæðna í Marokkó. Svona almennt er Marokkó talið getað verndað sína borgara en það geta verið einstaklingsbundin atvik sem valda því að einstaklingar eigi rétt á vernd eða dvalarleyfi af mannúðaraðstæðum,“ segir Arndís og bætir við að mál bræðranna séu mjög ólík. „Annars vegar vegna þess að annar þeirra er barn og hinn ekki og hins vegar vegna þess að sá sem er barn er samkynhneigður og hinn ekki. Það vissulega hefur gríðarlega mikla þýðingu og gerir það að verkum að þó að ekki sé búið að skoða mál hvorugs þeirra í kjölinn ennþá eru fleiri flögg á lofti hjá yngri bróðurnum og kannski augljósara að hann eigi rétt á vernd. En það er ekki útilokað um eldri bróðurinn, það á eftir að skoða sögu þeirra betur og aðstæður. Við eigum bara eftir að sjá hvernig Útlendingastofnun metur þetta.“
Tengdar fréttir Segir stjórnvöld beita Dyflinnarreglugerð blygðunarlaust á börn á flótta Dómsmálaráðherra segir það áskorun fyrir Íslendinga að taka á móti fylgdarlausum börnum á flótta en verið sé að móta reglugerð þar að lútandi. 31. maí 2017 20:00 Sextán ára fylgdarlausum dreng vísað úr landi Sextán ára marokkóskum dreng sem kom án forráðamanns hingað til lands í desember hefur verið synjað um hæli og verður vísað úr landi. Málið hefur verið kært til Kærunefndar útlendingamála. 17. maí 2017 19:20 Unnið að reglugerð um fylgdarlaus börn Dómsmálaráðuneytið vinnur að reglugerð er varðar fylgdarlaus börn sem koma hingað til lands. 31. maí 2017 13:30 Mest lesið „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Innlent „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent „Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Erlent Ætla að fara fram á frávísun málsins Innlent Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Innlent Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Innlent „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Innlent Fleiri fréttir Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni Sjá meira
Segir stjórnvöld beita Dyflinnarreglugerð blygðunarlaust á börn á flótta Dómsmálaráðherra segir það áskorun fyrir Íslendinga að taka á móti fylgdarlausum börnum á flótta en verið sé að móta reglugerð þar að lútandi. 31. maí 2017 20:00
Sextán ára fylgdarlausum dreng vísað úr landi Sextán ára marokkóskum dreng sem kom án forráðamanns hingað til lands í desember hefur verið synjað um hæli og verður vísað úr landi. Málið hefur verið kært til Kærunefndar útlendingamála. 17. maí 2017 19:20
Unnið að reglugerð um fylgdarlaus börn Dómsmálaráðuneytið vinnur að reglugerð er varðar fylgdarlaus börn sem koma hingað til lands. 31. maí 2017 13:30