Zuma stóð af sér vantrauststillögu Samúel Karl Ólason skrifar 8. ágúst 2017 17:34 Frá þinginu í Pretori í Suður-Afríku. Vísir/EPA
Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, stóð af sér vantrauststillögu á þinginu í dag. Þetta er í áttunda sinn sem kosið er um slíka tillögu gegn forsetanum, en í fyrsta sinn sem atkvæðagreiðslan er leynileg. Stjórnarandstaðan vonaðist til þess að þingmenn ANC flokksins, sem Zuma tilheyrir, myndu styðja vantraustið af því að kosningin var leynileg. 198 þingmenn voru andsnúnir tillögunni og 177 studdu hana. Til þess að tillagan hefði verið samþykkt þyrftu minnst 50 þingmenn ANC að styðja hana. Það gekk ekki eftir en þó studdu minnst 26 þingmenn flokksins tillöguna, samkvæmt frétt BBC. Níu þingmenn sátu hjá.Hinn 75 ára gamli Zuma hefur ítrekað verið sakaður um spillingu á átta ára forsetatíð sinni.Samkvæmt frétt Reuters er kreppa í Suður-Afríku. Þá var lánshæfimat ríkisins nýverið lækkað í ruslflokk af tveimur af þremur helstu matsfyrirtækjum heimsins. Atvinnuleysi er 27,7 prósent og hefur ekki verið hærra í fjórtán ár.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira