Sérfræðilæknum í fullu starfi á Landspítalanum verður fjölgað til muna Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 8. janúar 2017 18:58
Sérfræðilæknum í fullu starfi á Landspítalanum verður fjölgað til muna á næstunni en markmiðið er að stytta meðallengd innlagna sem er birtingarmynd fjölda vandamála. Forstjóri spítalans segir að aðeins verði gerðar undantekningar á því að læknar séu í fullu starfi þegar það hentar spítalanum og sjúklingum hans. Í dag eru fjórir mánuðir frá því ráðgjafafyrirtækið McKinsey skilaði skýrslu um rekstrarhagkvæmni og stöðu Landspítalans. Í skýrslunni eru lagðar til sjö aðgerðir sem miða að því að styrkja íslenskt heilbrigðiskerfi til framtíðar. Veigameista aðgerðin sem lögð er til lýtur að því að stytta meðallengd innlagna sem sé birtingarmynd fjölda vandamála á Landspítalanum. Meðal annars skort á getu til að taka mikilvægar klínískar ákvarðanir, langa biðlista og skort á afkastagetu utan spítalans sem hindrar flæði frá honum. Í skýrslunni kemur fram að víðast hvar erlendis hefur meðallegutíminn styst en því sé öfugt farið á Landspítalanum þar sem hann hefur lengst undanfarin ár. Lykilaðgerð til að bregðast við þessum vanda sé að auka viðveru sérfræðilækna á spítalanum en stór hluti þeirra starfar þar í hlutastarfi í dag.Gæti spítalinn ekki upp á einsdæmi ákveðið að ráða aðeins inn sérfræðilækna á þeirri forsendu að þeir væru í fullu starfi á spítalanum?„Jú, algjörlega. Við erum að ljúka aðgerðaráætlun sem miðar að því að fjölga mjög þeim sérfræðilæknum sem verða hjá okkur í fullu starfi á næstu árum. Þetta er ein af þeim aðgerðum sem við erum að skoða þar,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Hann vísar til þess að í dag er tæplega helmingur lækna spítalans í hlutastarfi. „Ég tel að við eigum að stefna að því að sem flestir læknar sem útskrifast verði hjá okkur í fullu starfi og það séu eingöngu gerðar undantekningar frá því þegar það hentar spítalanum og sjúklingum hans,“ segir Páll. Fjölgun sérfræðilækna í fullu starfi á Landspítalanum tengist annarri aðgerð sem lögð var til í McKinsey skýrslunni um að taka skuli meðvitaða ákvörðun byggða á staðreyndum um skipulag einkastofa sérfræðilækna. Í skýrslunni kemur fram að sá mikli munur á tekjumöguleikum sérfræðilækna milli opinbera og einkageirans leiði til þess að fjöldi sérfræðilækna á Landspítalanum er þar í hlutastarfi. Páll segir þetta verkefni helst vera á borði heilbrigðisráðherra enda þurfi að taka þetta kerfi til heildarendurskoðunar. „Í einhverjum tilfellum getur það hentað spítalanum og sjúklingum hans að ráða fólk í minna stöðuhlutfalli en það verður þá að vera út frá hagsmunum sjúklinga og spítalans en ekki hagsmunum viðkomandi lækna.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira