Fimm meðlimir Boko Haram sagðir látnir lausir í skiptum fyrir Chibok-stúlkurnar Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. maí 2017 16:51 Alþjóðanefnd Rauða Krossins sendi frá sér þessa mynd af stúlkunum í dag. Þær sjást stíga upp í flugvél, sem mun flytja þær á fund Muhammadu Buhari, forseta Nígeríu. Vísir/AFP
Nígerískur embættismaður hefur staðfest að fimm meðlimir hryðjuverkasamtakanna Boko Haram hafi verið látnir lausir í skiptum fyrir Chibok-stúlkurnar 82, sem sleppt var úr haldi samtakanna í gær. AP-fréttaveitan greinir frá gangi mála.Stúlkunum var sleppt í gær eftir að hafa verið fangar Boko Haram síðan 2014. Embættismaðurinn sem staðfesti lausn Boko-Haram-liðanna vildi ekki láta nafn síns getið en hann er ekki sagður hafa umboð til að tjá sig um málið við fjölmiðla. Embætti forseta Nígeríu, Muhammadu Buhari, hefur enn ekki tjáð sig um málið og þá hefur heldur ekkert heyrst í hryðjuverkasamtökunum sjálfum. Um 20 stúlkum var sleppt í október á síðasta ári. Þá hafa 113 stúlkur af þeim 276 sem rænt var úr heimavistarskóla, þar sem þær stunduðu nám, enn ekki komið í leitirnar. Talið er að einhverjar þeirra séu látnar og að enn aðrar hafi aðhyllst öfgastefnu ræningja sinna og neiti nú að snúa aftur heim. Stúlkurnar, sem látnar voru lausar í gær, munu hitta fyrir forseta Nígeríu síðar í dag. Þá lenti hópur stúlkna á flugvellinum í Abuja, höfuðborg Nígeríu, í dag og þær keyrðar á brott í bílum á vegum hersins. Yfirvöld í Nígeríu hafa enn fremur sagst staðráðin í því að bjarga þeim stúlkum sem enn eru í haldi Boko Haram.
Tengdar fréttir 82 Chibok-stúlkum sleppt úr haldi Boko Haram 82 stúlkum úr þorpinu Chibok í Nígeríu, sem voru í hópi fleiri stúlkna sem vígasamtökin Boko Haram rændu árið 2014, hefur verið sleppt úr haldi. 6. maí 2017 20:51 Chibok stúlkurnar fengu að halda jólin heima Var rænt af vígamönnum en nýverið sleppt úr haldi. 25. desember 2016 09:49 Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira
82 Chibok-stúlkum sleppt úr haldi Boko Haram 82 stúlkum úr þorpinu Chibok í Nígeríu, sem voru í hópi fleiri stúlkna sem vígasamtökin Boko Haram rændu árið 2014, hefur verið sleppt úr haldi. 6. maí 2017 20:51
Chibok stúlkurnar fengu að halda jólin heima Var rænt af vígamönnum en nýverið sleppt úr haldi. 25. desember 2016 09:49