Mun gera Bandaríkjaþingi kleift að herða refsiaðgerðir gegn Rússum Atli Ísleifsson skrifar 23. júlí 2017 10:37 Donald Trump Bandaríkjaforseti. Vísir/afp
Leiðtogar Demókrata og Repúblikana á bandaríska þinginu hafa komist að samkomulagi um lagabreytingar sem gerir þinginu kleift að herða refsiaðgerðir gegn Rússum vegna afskipta þeirra af forsetakosningunum á síðasta ári. Breytingarnar takmarka einnig getu Donalds Trump Bandaríkjaforseta til að draga úr þessum aðgerðum, en forsetinn hefur áður lýst því yfir að hann þurfi svigrúm til að eiga við rússnesk stjórnvöld. Ráðgjafar Trump hafa verið sakaðir um að hafa átt í samskiptum við rússneska embættismenn í aðdraganda kosninganna á síðasta ári og standa nú yfir nokkrar rannsóknir á málinu. Rússnesk stjórnvöld hafa hins vegar vísað því á bug að þau hafi reynt að hafa áhrif á úrslit forsetakosninganna á síðasta ári. Fréttaskýrendur segja að samkomulagið á þinginu bendi til að þingið ætli sér að standa á sínu í samskiptum við Rússa, sama hvað Trump gerir. Í frétt BBC segir að forsetinn gæti beitt neitunarvaldi gegn frumvarpinu, en myndi hann ákveða að fara þá leið myndi það styrkja þá skoðun margra að Trump og nánstu samstarfsmenn hans séu of nánir Rússlandsstjórn.
Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira