Þrýst á leyniþjónustuna um að finna gögn gegn Írönum Kjartan Kjartansson skrifar 28. ágúst 2017 14:40 Bandarískt leyniþjónustufólk er sagt brennt af reynslunni frá því í aðdraganda Íraksstríðsins síðara. Vísir/EPA
Fulltrúar Hvíta hússins eru nú sagðir þrýsta á bandarísku leyniþjónustuna um að finna tilefni til að saka Írana um að brjóta gegn samkomulagi um kjarnorkumál. Trump forseti er sagður vilja rifta því nú þegar. Breska blaðið The Guardian hefur eftir fyrrverandi embættismönnum og leyniþjónustugreinendum að bandarískir leyniþjónustumenn þráist nú við að finna átyllu sem gæti réttlætt að bandarísk stjórnvöld rifti samkomulaginu sem var gert árið 2015 í forsetatíð Baracks Obama þrátt fyrir þrýsting frá Hvíta húsinu. Samkvæmt samkomulaginu sem stjórnvöld í Teheran, Bandaríkjunum og fimm öðrum ríkjum skrifuðu undir hafa Íranar dregið verulega úr kjarnorkuáætlun sinni. Í staðinn hefur verið létt á refsiaðgerðum gegn landinu. Þær stofnanir sem fylgjast með því að Íranar fari eftir skilmálum samkomulagsins hafa ekki fundið neinar vísbendingar um að þeir hafi svikist undan. Bandarísk stjórnvöld eru einnig sögð hafa þrýst á Alþjóðakjarnorkustofnunina um að krefjast þess að fá að skoða herstöðvar í Íran. Írönsk stjórnvöld hafa lýst því yfir að eftirlitsmönnum verði ekki veittur aðgangur að þeim.Tillerson utanríkisráðherra (t.h.) er sagður hafa talið Trump hughvarf um að rifta samkomulaginu við stjórnvöld í Teheran.Vísir/AFPGrefur undan gagnsemi leyniþjónustunnarDonald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að hann geri ráð fyrir því að lýsa því yfir að Íranar hafi brotið gegn samkomulaginu um miðjan október þegar hann þarf næst að gefa Bandaríkjaþingi skýrslu um stöðu þess. Í viðtali við Wall Street Journal í júlí sagði Trump að ef ákvörðunin væri upp á hann einn komin þá hefði hann þá þegar verið búinn að lýsa Írana brotlega við skilmála samkomulagsins. Gaf hann í skyn að það hefði verið Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem hafði fengið hann til að staðfesta að Íranar heiðruðu samninginn síðast þegar hann þurfti að gefa þinginu skýrslu. „Þetta snýr leyniþjónustustarfinu á haus. Ef það er dregið úr vægi leyniþjónustunnar vegna þess að hún er gerð pólitísk á þann hátt sem forsetinn virðist vilja gera hér þá grefur það undan gagnsemi leyniþjónustunnar á öllum sviðum,“ sagði David Cohen, fyrrverandi aðstoðarforstjóri leyniþjónustunnar CIA við CNN.Minnir á aðdraganda innrásarinnar í ÍrakFramferði Trump-stjórnarinnar nú er sagt minni um margt á tilburði ríkisstjórnar George W. Bush í aðdraganda innrásarinnar í Írak árið 2003. Þá beittu bandarísk stjórnvöld fölskum upplýsingum til að réttlæta hernaðaríhlutun til að steypa Saddam Hussein af stóli. Bandarískir leyniþjónustumenn eru sagðir minnugir þess og vilji flest vinna til þess að sagan endurtaki sig ekki. „Ég hef heyrt sögur frá nokkrum sem tilheyra leyniþjónustusamfélaginu um þeir upplifi sig undir þrýstingi. Þeir segja mér að þeim sé misboðið. Þeir fá deja vu-tilfinningu. Mönnum finnst eins og þeir hafi séð þessa bíómynd áður,“ segir Ned Price, fyrrverandi greinandi hjá CIA sem var einnig talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna í tíð Baracks Obama, fyrrverandi forseta.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Erlent Fleiri fréttir Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Sjá meira