Lögreglustjóri braut gegn lögreglumanni Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 25. apríl 2017 18:12 Sigríður Björk Guðjónsdóttir Vísir/Anton
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, braut gegn lögreglumanni með hegðun sinni. Þetta er niðurstaða vinnustaðasálfræðings sem innanríkisráðuneytið fékk til að fara yfir kvörtun lögreglumannsins undan hegðun Sigríðar. Hann segir það hafið yfir allan vafa að hún hafi brotið gegn honum, en að hegðunin geti ekki flokkast sem einelti, heldur frekar sem áreiti. RÚV greinir frá. Lögreglumaðurinn kvartaði undan einelti Sigríðar Bjarkar í ágúst á síðasta ári í ítarlegu bréfi til innanríkisráðuneytisins. Í bréfinu sagði meðal annars að hann og aðrir fjölskyldumeðlimir hafi þurft að leita sér sálfræðiaðstoðar vegna framgöngu Sigríðar og að embætti lögreglustjórans hafi borgað fyrir meðferðina. Ráðuneytið skipaði svo vinnustaðasálfræðing í byrjun september til að fara yfir málið og ræddi hann við lögreglumanninn og lögreglustjórann auk 16 annarra. Í skýrslu sálfræðingsins, sem skilað var í febrúar, eru tilgreind tólf atvik. Var það mat sálfræðingsins að ekki væri hægt að flokka níu þeirra sem einelti og var þeim vísað frá. Hann taldi það hins vegar hafið yfir allan vafa að í þremur atvikum hefði Sigríður Björk brotið gegn lögreglumanninum.Skammir með hávaða og æsingi Í einu tilvikinu skammaði Sigríður Björk lögreglumanninn og ávítti hann með hávaða og æsingi og hlustaði ekki á hann. Í öðru tilviki sagði Sigríður að lögreglumaðurinn gæti ekki lengur gegnt stöðu lögreglufulltrúa innan miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar og það þriðja sneri að ferð á lögreglunámskeið í Búdapest sem lögreglumaðurinn átti að fara á en Sigríður Björk ákvað a hann færi ekki. Sálfræðingurinn skilgreinir þessa hegðun lögreglustjórans sem áreitni, sem fellur undir viðmið birtingarmyndar eineltis á vinnustað. Það er hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða valda honum ótta. Eftir að hafa farið yfir skýrsluna taldi ráðuneytið ekki ástæðu til að grípa til frekari aðgerða en beindi þeim tilmælum til lögreglustjórans að gæta að framkomu sinni gagnvart starfsmönnum embættisins.Líkt og greint hefur verið frá hafa tilfæringar og brottvísanir í starfi verið óvenju tíðar hjá lögreglu undanfarin misseri og valdið yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu erfiðleikum. Jafnframt hefur verið viðloðandi samskiptavandi yfirstjórnenda hjá lögreglunni.
Tengdar fréttir Sigríður Björk segir eina kvörtun vegna meints eineltis af hennar hálfu hafa borist innanríkisráðuneytinu Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri lögreglunna á höfuðborgarsvæðinu, segir að ein kvörtun vegna meints eineltis af hennar hálfu hafi borist innanríkisráðuneytinu, nú dómsmálaráðuneyti, og að fyrir liggi drög að niðurstöðu óháðs sérfærðings vegna hennar. 7. apríl 2017 14:19 Vilja að ráðuneytið rannsaki meint einelti lögreglustjóra Landssamband lögreglumanna hefur óskað eftir því að innanríkisráðuneytið rannsaki án tafar hvort Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hafi lagt starfsmenn sína í einelti. 1. apríl 2017 19:18 Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Sigríður Björk segir eina kvörtun vegna meints eineltis af hennar hálfu hafa borist innanríkisráðuneytinu Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri lögreglunna á höfuðborgarsvæðinu, segir að ein kvörtun vegna meints eineltis af hennar hálfu hafi borist innanríkisráðuneytinu, nú dómsmálaráðuneyti, og að fyrir liggi drög að niðurstöðu óháðs sérfærðings vegna hennar. 7. apríl 2017 14:19
Vilja að ráðuneytið rannsaki meint einelti lögreglustjóra Landssamband lögreglumanna hefur óskað eftir því að innanríkisráðuneytið rannsaki án tafar hvort Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hafi lagt starfsmenn sína í einelti. 1. apríl 2017 19:18