Framseldur til Finnlands vegna gruns um rán og líkamsárás Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 17. maí 2016 22:54 Norræn handtökuskipun var gefin út á hendur manninum. Vísir/Getty
Hæstiréttur staðfesti í dag ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að fallast á framsal manns sem sakaður er um rán í Finnlandi. Finnsk yfirvöld kröfðust þess í febrúar á þessu ári að maðurinn yrði afhentur þeim samkvæmt norrænni handtökuskipun. Grundvöllur handtökuskipunarinnar er úrskurður héraðsdóms í Varsinais-Sumoi, sem er finnska heitið yfir Suður-Finnland, en í úrskurðinum var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald að honum fjarstöddum. Maðurinn er grunaður um rán í félagi við annan mann en þeir eru sakaðir um að hafa ráðist að þriðja manninum, barið og sparkað í hann, slegið hann með hníf í hendi og flösku í höfuð og rænt af honum veski sem í voru 1480 evrur, Nokia farsíma, bíllyklum og því næst ekið bifreið hans á brott. Hinn árásarmaðurinn hefur þegar verið sakfelldur í málinu. Þá er mönnunum gert að sök að hafa „neytt brotaþola til þess að hringja í vin sinn í því skyni að útvega meiri fjármuni sem hafi átt að afhenda þriðja manni fjármunina og hafi hann síðan átt að afhenda hinum grunuðu fjármunina. Að lokum hafi hann hellt dísel yfir brotaþola og skilið hann eftir bundinn í iðnaðarhúsnæði.“ Samkvæmt dóminum flúði maðurinn ómannúðlegar aðstæður í heimalandi sínu og í framhaldinu hafi hann lent í höndum glæpamanna en verið kærður í Finnlandi fyrir að ráðast á einn þeirra. Sá sem framseldur verður til Finnlands samkvæmt dóminum samþykkti ekki sjálfviljugur að verða afhentur finnskum yfirvöldum en kannaðist við aðild sína að málinu. Hann kvaðst ekki hafa tekið eins mikinn þátt í átökunum og honum er gefið að sök. Í dóminum segir að hann hafi „einungis lamið brotaþola smávegis.“ Þegar hann var spurður nánar út í málið viðurkenndi hann að hafa sparkað í þolandann og kýlt hann. Maðurinn sagðist hafa verið 14 ára þegar árásin átti sér stað en við nánari athugun kom í ljós að hann var í raun 15 ára og því ekki barn þegar atburðurinn átti sér stað. Af þeim sökum uppfyllti maðurinn ekki skilyrði um að
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Sjá meira