Borgin borgar minnst Sveinn Arnarsson skrifar 20. maí 2016 07:00 Krakkar úr Vinnuskóla Reykjavíkur að störfum við Árbæjarskóla fyrir þremur árum. Fréttablaðið/Anton Brink
Reykjavík greiðir börnum í vinnuskóla borgarinnar lægstu launin af öllum sveitarfélögum landsins. Börn í 10. bekk í Reykjavík fá sömu greiðslur og börn í 8. bekk í Vestmannaeyjum. Munur á hæstu og lægstu launum nemur 120 til 168 prósentum.Þetta kemur fram í svörum sveitarfélaga sem borist hafa Fréttablaðinu um laun í vinnuskólum sveitarfélaganna. Á fjórða tug sveitarfélaga hafa svarað fyrirspurninni en fjölmörg minni sveitarfélög vítt og breitt um landið reka ekki svokallaða vinnuskóla. Athygli vekur einnig að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu virðast greiða unglingum sínum mun lægri laun að meðaltali en sveitarfélög í landsbyggðunum. Snæfellsbær greiðir hæstu laun til starfsmanna vinnuskólans. Tíundubekkingar fá greiddar 1.359 krónur á klukkustund. Til samanburðar fá reykvísk börn 617 krónur á tímann. Eru reykvísk börn því ekki hálfdrættingar á við börn í Snæfellsbæ.Mörg sveitarfélög greiða því laun undir lágmarkstaxta sem ASÍ hefur samið við SA um laun frá 15 ára aldri. Það er réttlætt með þeim rökum að um skóla sé að ræða þar sem börnum er kennt að vinna og að um félagsmálaúrræði sé að ræða. Hins vegar skýtur það skökku við að Vinnuskóli Reykjavíkurborgar er ekki undir skóla- og frístundaráði borgarinnar heldur rekinn innan umhverfis- og skipulagsráðs. Því má segja að borgin leggi lítið upp úr menntunarþætti vinnuskólans því tengingin við það svið er ekkert. „Það er ekkert keppikefli hjá okkur að greiða lægstu launin,“ segir Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. „Við verðum hins vegar að sýna ráðdeild í rekstri. Laun í vinnuskólanum hafa hækkað um 13,7 prósent frá því í fyrra því laun í vinnuskólanum fylgja launaþróun hjá borginni.“Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir þetta til marks um hvað borgin sé illa rekin. „Það er leiðinlegt að við skröpum botninn og bjóðum í ofanálag ekki áttunda bekk upp á vinnuskóla,“ segir Halldór. „Þetta undirstrikar að borgin er á leið að verða fátækt sveitarfélag því hún er illa rekin. Borgin hefur ekki lengur efni á að veita borgarbúum góða þjónustu.“ Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu greiða lág laun sé mið tekið af miðgildi launa sveitarfélaganna. Til að mynda raða Hafnarfjörður og Garðabær sér í neðstu sætin í öllum aldursflokkum. Reykjavík greiðir lægstu launin fyrir börn í 9. og 10. bekk og býður ekki upp á vinnuskóla fyrir börn í 8. bekk og er Reykjavík því eina sveitarfélagið af þeim sem reka vinnuskóla sem býður ekki upp á vinnu fyrir þann hóp.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 20. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira