Lestarslysið í Bæjaralandi rakið til mannlegra mistaka Atli Ísleifsson skrifar 16. febrúar 2016 13:35 Allir ellefu sem létust voru karlmenn á aldrinum 24 til 59 ára. Vísir/AFP
Saksóknari í Þýskalandi segir að lestarslysið í Bæjaralandi síðastliðinn þriðjudag hafi verið rakið til mannlegra mistaka. BBC greinir frá þessu. Ellefu manns létust og rúmlega áttatíu slösuðust, þar af átján alvarlega, þegar tvær lestir rákust saman á um 100 kílómetra hraða á spori milli Bad Aibling og Rosenheim, um sextíu kílómetrum suðaustur af München.Í fyrri fréttum BBC um málið segir að rannsakendur hafi meðal annars beint sjónum sínum að manni sem stýrir lestarumferð á svæðinu og hvort hann hafi slökkt á sjálfvirku öryggiskerfi skömmu fyrir áreksturinn. Rannsóknin hefur meðal annars snúið að því að finna ástæður þess að önnur lestin, sem yfirgaf Holzkirchen á leið til Rosenheim, hafi verið á einföldu spori klukkan 6:48 að morgni, fjórum mínútum eftir að hún átti að vera á næstu lestarstöð, Kolbermoor, þar sem hún átti að mæta lestinni á leið til vesturs á tvöföldu spori. Lestin sem var á leið frá Rosenheim, vestur til Holzkirchen fór frá Kolbermoor klukkan 6:45 og átti að vera á einfalda sporinu þegar áreksturinn varð. Allir ellefu sem létust voru karlmenn á aldrinum 24 til 59 ára.
Tengdar fréttir Alvarlegt lestarslys í Þýskalandi Tvær farþegalestir skullu saman og um 150 eru sagðir slasaðir og minnst fjórir hafa látið lífið. 9. febrúar 2016 08:17 Upplýsinga beðið úr svörtu kössunum Eitt versta lestarslys í sögu Þýskalands varð í Bæjaralandi í gær, skammt frá bænum Bad Aibling. Að minnsta kosti tíu létu lífið og sautján slösuðust alvarlega. Björgunarfólk átti erfitt með að komast að slysstaðnum. Engin skýring hafði í gær fengist á því hvers vegna báðar lestirnar voru þar á ferðinni á móti hvor annarri. Þær virtust hafa lent saman á fullri ferð, án þess að reynt hafi verið að hægja á, því fremsti vagn annarrar lestarinnar klauf hliðina af fremsta vagni hinnar lestarinnar. 10. febrúar 2016 06:00 Lestarslysið í Bæjaralandi: Tíu manns látnir og sautján alvarlega slasaðir Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru minnst sautján alvarlega slasaðir og 63 með minniháttar meiðsl. 9. febrúar 2016 17:27 Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira
Alvarlegt lestarslys í Þýskalandi Tvær farþegalestir skullu saman og um 150 eru sagðir slasaðir og minnst fjórir hafa látið lífið. 9. febrúar 2016 08:17
Upplýsinga beðið úr svörtu kössunum Eitt versta lestarslys í sögu Þýskalands varð í Bæjaralandi í gær, skammt frá bænum Bad Aibling. Að minnsta kosti tíu létu lífið og sautján slösuðust alvarlega. Björgunarfólk átti erfitt með að komast að slysstaðnum. Engin skýring hafði í gær fengist á því hvers vegna báðar lestirnar voru þar á ferðinni á móti hvor annarri. Þær virtust hafa lent saman á fullri ferð, án þess að reynt hafi verið að hægja á, því fremsti vagn annarrar lestarinnar klauf hliðina af fremsta vagni hinnar lestarinnar. 10. febrúar 2016 06:00
Lestarslysið í Bæjaralandi: Tíu manns látnir og sautján alvarlega slasaðir Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru minnst sautján alvarlega slasaðir og 63 með minniháttar meiðsl. 9. febrúar 2016 17:27