Árekstur á umdeildum gatnamótum: Ökumaður líklega undir áhrifum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. febrúar 2016 10:22 Umrædd T-gatnamót sem krafist er bóta á sem allra fyrst. Kort/Loftmyndir.is
Betur fór en á horfðist þegar harður árekstur tveggja bíla varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar við Rauðhellu, rétt austan við álverið í Straumsvík, á þriðja tímanum í gær. Notast þurfti við klippur vegna þess hve illa farnir bílarnir voru en sem betur fer reyndust meiðsli ökumanna minniháttar. Sá sem talinn er valdur að árekstrinum er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis eða lyfja. Þetta staðfestir lögreglan í Hafnarfirði í samtali við Vísi. Er málið til rannsóknar þar á bæ. Umrædd gatnamót hafa verið Hafnfirðingum hugleikin undanfarin misseri. Fyrirtæki í Hellnahrauni og Selhrauni eru orðin langþreytt á gatnamótunum og buðu Haraldi Haraldssyni bæjarstjóra á samstöðufund í byrjun janúar með það fyrir augum að ýta á eftir framkvæmdum. Fulltrúi fyrirtækjanna fór í kjölfarið á fund innanríkisráðherra ásamt bæjarstjóra og formanni skipulags- og byggingaráðs bæjarins. Minntu þau á að þúsundir starfsmanna, íbúa og viðskiptavini aki daglega um núverandi T-gatnamót, þar af hundruð stórra flutningabíla. Vilja þau flýta fyrirhuguðum framkvæmdum á svæðinu, hefja þær árið 2017 í stað 2018.Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.Vilja ljósastýringu í millitíðinni Umhverfis- og skipulagsráð Hafnarfjarðar sendi Vegagerðinni síðast bréf 15. janúar þar sem því var beint til Vegagerðarinnar að „fara nú þegar í aðgerðir við gatnamót Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar til að tryggja öryggi þeirra sem aka þar um.“ Síðar í bréfinu segir að „reynist ekki unnt að fara í framkvæmdir nú þegar er farið þess á leit við Vegagerðina að sett verði up ljósastýring á gatnamótunum.“ Í svari Vegagerðarinnar til bæjarins segir að í þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2011-2022, sem samþykkt var á Alþingi 2012, hafi verið áætlað að verja 1,8 milljörðum króna í Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar á 2. tímabili áætlunarinnar, þ.e. frá 2015-2019. Í samráði við tæknideild Hafnarfjarðar miði Vegagerðin að því að næsti áfangi við tvöföldun Reykjanesbrautar verði mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg, þar sem áreksturinn varð í gær. Áætlaður kostnaður við gatnamótin er 1 milljarður króna.Vallarhverfið í Hafnarfirði.Vísir/GVAHönnun liggur fyrir Endurskoðun á samgönguáætlun 2015-2026 stendur nú yfir og gerir Vegagerðin ráð fyrir að áætlunin verði afgreidd á yfirstandandi þingi. Talið er að fjárveiting til gatnamótanna fáist varla fyrr en árið 2018 eins og áður hafi verið gert áætlun um. Hönnun er lokið á gatnamótunum og því ætti að taka skamman tíma að bjóða framkvæmdina út þegar fjárveitingu hefur verið lokið að sögn Vegagerðarinnar. Þangað til er til skoðunar hvernig megi bæta öryggi vegfarenda. Þar eru umferðarljós til skoðunar og sömuleiðis breikkun gatnamótanna sem gæti dregið úr slysahættu. Unnið er að málinu með tæknideild Hafnarfjarðarbæjar og stefnt að því að niðurstöður liggi fyrir á næstum mánuðum svo framkvæmdir geti hafist um mitt sumar.
Tengdar fréttir Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur Virðist öðrum bílnum hafa verið ekið inn í hinn. 11. febrúar 2016 16:33 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Sjá meira
Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur Virðist öðrum bílnum hafa verið ekið inn í hinn. 11. febrúar 2016 16:33