Er líkamleg jarðtenging heilsubylting? Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skrifar 22. nóvember 2016 10:43 Fólk verður í auknum mæli vart við óþol gagnvart rafmagni, rafsviði og segulsviði. Yfirleitt eru menn núorðið sammála um að það að vera í miklu rafsegulsviði sé ekki gott fyrir líkamann og heilsuna. Sumir finna lítið fyrir líkamlegum áhrifum rafmagns en aðrir finna mjög greinilega fyrir þeim og þá m.a. í formi náladofa eins og litlum nálum sé stungið í líkamann eða í formi sviða. Viðvarandi áhrif rafspennu á líkamann eru m.a. talin vera hjartsláttartruflanir, truflun á öndun, mikil þreytutilfinning, höfuðverkur og liðverkir. Öll einbeiting fer lönd og leið og skammtímaminnið fer að svíkja. Alls konar rafmagnstæki sem við notum og umgöngumst senda frá sér rafspennu. Þau senda frá sér mismunandi styrk rafspennu og hana er hægt að mæla m.a. með fjölsviðsmælum. Þessi spenna er mæld í Voltum. Í umhverfinu eru + (plús) og – (mínus) rafeindir. Ofanjarðar eru +rafeindir sem eru mælanlegar og neðanjarðar eru -rafeindir. Þegar jarðtenging er góð er mælanlega rafspennan nálægt núlli. Til að draga úr og lágmarka spennu sem ýmis rafmagnstæki mynda og senda frá sér eru tækin jarðtengd. Það er afar mikilvægt því að annars fer rafspennan út í umhverfið í formi +rafeinda og hleðst þar upp. Með því að tengja + rafeindirnar í jörðu þar sem eru -rafeindir jafnast spennan út. Umhverfið ofanjarðar er endalaust að senda frá sér +rafeindir m.a. í formi geisla frá sólinni og eldinga. Líkaminn tekur til sín +rafeindir úr umhverfinu m.a. frá illa jarðtengdum rafmagnstækjum. Náttúran gerir ráð fyrir að jörðin taki þær til sín í formi líkamlegrar jarðtengingar þegar þær tengjast -rafeindum neðanjarðar. Þá myndast jafnvægi. Áður fyrr þegar fólk var úti í náttúrunni og gekk berfætt á jörðinni þá jafnaðist hleðslan í líkamanum þar sem líkaminn var stöðugt jarðtengdur og þá hlóðst ekki upp rafspenna þ.e. +rafeindir í líkamanum. Nú á tímum er fólk svo sjaldan í beinni snertingu við jörðina að +rafeindir hlaðast upp í líkamanum og Það hefur neikvæð áhrif á líkama og heilsu fólks. Frumurnar þurfa að vera í góðu jafnvægi til að halda líkamanum heilbrigðum. Sérstaklega er mikilvægt að vera vel jarðtengdur þar sem við dveljum lengi t.d. í svefnherbergjum þar sem við sofum eða þar sem við sitjum langtímum framan við tölvur í vinnunni. Talið er að lífsstílssjúkdóma megi m.a. rekja til langvarandi upphleðslu +rafeinda í líkamanum Þar sem maðurinn einangrar sig sífellt meira frá líkamlegri jarðtengingu. Skór, yfirborðsefni gatna og gangstíga, aukin innivera, seta í farartækjum og fleira gerir það að verkum að líkaminn hefur stöðugt minni jarðtengingu. Þetta veldur því að +rafeindir hlaðast upp í líkamanum og valda spennu, heilsuleysi og veikindum. Sífellt fleiri hallast að þeirri skoðun að þetta ójafnvægi í spennu líkamans þar sem +rafeindir hlaðast upp eigi mikinn þátt í nútímasjúkdómum. Er hugsanlegt að rekja megi vefjagigt og Alzheimer til upphleðslu +rafeinda í líkamanum? Gæti verið að sinadráttur væri +rafeindir að reyna að komast til jarðar? Því er haldið fram að með því að jarðtengja líkamann verði frumunum mögulegt að endurnýja sig eðlilega og líkamanum kleift að lækna sig sjálfur eins og náttúran gerir ráð fyrir. Allt of fáir fræði- og vísindamenn virðast vera að skoða áhrif rafmgans á líkamann og mjög takmarkandi rannsóknir finnast. Sumir halda því fram að með því að ganga berfættur úti í náttúrunni a.m.k. 20 mínútur á dag geti fólk bætt heilsu sína verulega og losnað við ýmsa kvilla og veikindi. Þetta er kallað earthing eða grounding eða jarðtenging. Því er haldið fram að earthing/jarðtenging hafi miklu öflugri andoxunaráhrif en andoxunarfæðan sem fólk borðar í auknum mæli sér til heilsubótar. Að ganga í söltum, blautum sandi er talið gefa sérlega góða jarðtengingu fyrir líkamann og er það kannski ástæðan fyrir síauknum vinsældum sjósunds sem talið er góð heilsubót.Earthing/Jarðtenging Nýlega kom út bók sem ber heitið: Earthing: The most important health discovery ever eða Jarðtenging: Mikilvægasta heilsuuppgötvun allra tíma. Höfundar bókarinnar eru Clinton Ober, Stephen T. Sinatra og Martin Zucker. Í lauslegri þýðingu á kynningu bókarinnar segir m.a.:Lausnin á langvarandi bólgu sem talin er orsök algengustu nútímasjúkdóma, hefur verið fundin! Og það eru ekki bláber. Það er eitthvað rétt undir fótum okkar - Jörðin sjálf!Lengst af gengu menn berfættir og sváfu á gólfinu, að mestu ómeðvitaðir um að yfirborð jarðar inniheldur endalausa heilunarorku. Vísindin hafa skilgreint þessa orku sem frjálst flæði rafeinda frá sólargeislum og eldingum. Fáir vita það en jörðin framleiðir fíngerð rafmagnsmerki sem viðhalda heilsu og stjórna flóknu kerfi líkamans. Nútíma lífsstíll þ.m.t. útbreidd notkun skófatnaðar með einangrandi gúmmí- eða plastsólum, hefur aftengt okkur frá þessari orku og, að sjálfsögðu, sofum við ekki lengur á jörðinni eins og við gerðum áður fyrr.Bókin Earthing/Jarðtenging kynnir ótrúlega, öfluga og stórkostlega náttúrulega heilunarorku jarðarinnar og hvernig fólk alls staðar getur auðveldlega tengst henni. Bókin útskýrir hvernig líkamleg aftenging frá jörðinni skapar óeðlilega lífeðlisfræði sem á þátt í bólgum, verkjum, þreytu, streitu og svefnleysi. Með því að tengjast jörðinni aftur er hægt að minnka þessi líkamlegu einkenni og jafnvel útrýma þeim.Þessi saga, sem aldrei áður hefur verið sögð, full af heillandi rannsóknum og raunverulegum sögum úr lífi fólks gefur yfirlit yfir uppgötvun með möguleika á að hrinda af stað alheims heilsubyltingu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun