Eistnakreistingur á annan í jólum kostaði djammara 100 þúsund krónur Stefán Ó. Jónsson skrifar 21. febrúar 2016 19:56 Gripið átti sér stað á Gamla kaupfélaginu á Akranesi vísir/Gva
Héraðsdómur Vesturlands dæmdi mann á dögunum til að greiða 100.000 krónu sekt fyrir að hafa gripið í klof dyravarðar á skemmtistaðnum Gamla Kaupfélaginu á Akranesi annan í jólum árið 2014. Í dómi hérðasdóms kemur fram að maðurinn hafi kreist pung dyravarðarins svo hann bólgnaði, varð um „tvöfalt á við það sem eðlilegt geti talist,“ og marðist. Fyrir dómi skýrði maðurinn svo frá að hann hefði verið á dansleik á Gamla kaupfélaginu aðfaranótt 27. desember 2014. Hann hefði verið í miklu stuði, ölvaður en ekki ofurölvi, og farið upp á svið til að dansa. Þá hefði dyravörður komið aftan að honum, án þess að ávarpa hann, tekið hann taki og reigt hendur hans aftur. Kvaðst hann hafa meitt sig í öxlunum og reynt að losa sig með því að hreyfa sig til. Maðurinn sagðist ekki kannast við að hafa gripið í klof dyravarðarins en hann gæti ekki útilokað að hönd sín gæti hafa lent á þessu svæði. Hefðu þeir dottið fram af sviðinu og þá hefði annar dyravörður komið að og mikil átök átt sér stað á gólfinu. Dyravörðurinn sagði fyrir dómi að svo hefði ekki verið. Maðurinn hefði gripið um pung hans í um 2 til 3 sekúndur en hönd hans ekki slegist í klof dyravarðarins.Ekki hægt að útiloka högg Læknir sem var á vakt það kvöld gaf símaskýrslu vegna læknisskoðunar á dyraverðinum eftir að hann kom á sjúkrahúsið. Kvaðst Sindri hafa skoðað brotaþola um klukkutíma eftir að hann hefði lent í átökum. Lýsti hann því að dyravörðurinn hefði gengið haltur vegna verkja. Við skoðun á kynfærum mannsins hefði pungurinn verið greinilega bólginn og talsvert stækkaður eða líklega tvöfalt á við það sem eðlilegt geti talist. „Vitnið staðfesti að þeir áverkar sem brotaþoli hefði verið með gætu tvímælalaust hafa orsakast við atburðarás eins og þá sem brotaþoli hefði lýst fyrir honum, eða við það að vera klipinn í punginn. Kvaðst vitnið ekki geta útilokað að áverkar brotaþola gætu hafa komið við högg en áverkarnir væru eins og hann myndi búast við í tilvikum þegar vefirnir hefðu verið kramdir,“ segir í dómi héraðsdóms. Hinum ákærða var gert að greiða 100 þúsund krónur í sekt og að átta daga fangelsi kæmi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira