Gussi veiddi risaþorsk á sjóstangveiðimóti Jakob Bjarnar skrifar 22. mars 2016 12:45 Gussi með ferlíkið. Gussi er forfallinn sjóstangveiðimaður og líkast til er um Íslandsmet að ræða. Jóhannes Simonsen
Gunnar Jónsson, betur þekktur sem leikarinn Gussi, veiddi þorsk sem reyndist 37,5 kíló og er það líkast til met. Ekki er vitað til þess að svo mikill þorskur hafi veiðst á sjóstöng. Gunnar, sem sjálfur er engin smásmíði, átti fullt í fangi með að lyfta ferlíkinu fyrir myndatöku.Gussi þaulvanur stangveiðimaðurÞað er vefmiðillinn Skessuhorn sem greinir frá þessu, en þar segir frá því að Sjóstangaveiðifélagið Skipaskagi á Akranesi hafi staðið fyrir innanfélagsmóti í sjóstangveiði á laugardaginn í blíðskaparveðri. Tuttugu og þrír tóku þátt og þar af voru sex nýliðar. Gussi er ekki einn af þeim, þaulvanur sjóstangveiðimaður, forfallinn reyndar og þræðir hann sjóstangveiðimótin. „Jóhannes Simonsen formaður Skipaskaga var aflahæstur karla með 384,55 kg og Ágústa S Þórðardóttir var aflahæst kvenna með 104,1 kg. Aflahæsti báturinn var Þerna AK með heildarveiði upp á 964,2 kg og var Högni Reynisson skipstjóri,“ segir í Skessuhorni sem ræðir við Jóhannes. Hann segir frá því að óvenju stór og þungur fiskur hafi veiðst á mótinu en þetta mun hafa verið í fyrsta skipti sem mótið er haldið fyrir árlegt veiðistopp sem er frá 1. til 21. apríl.Þrír yfir Íslandsmetinu „Það sem gerir mótið sérstakt er að við gerðum tilraun til að halda mótið fyrir páskastoppið þegar fiskurinn er að hrygna. Innanfélagsmótið var því haldið á meðan stórfiskurinn er enn í Faxaflóa,“ segir Jóhannes í samtali við Skessuhorn. Meðalþyngd fiska reyndist töluvert hærri en vanalega eða um 9,5 kíló. Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhorns, fylgdist grannt með gangi mála og hann segir, í samtali við Vísi að að einir þrír þorskar hafi veiðst í mótinu sem voru yfir gildandi Íslandsmeti. „En, þeir vilja ekki gera það að Íslandsmeti vegna þessa að mótið fór fram á óhefðbundnum tíma, það er fyrir hrygningarstopp.“
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Fleiri fréttir ÖBÍ greiðir málskostnaðartryggingu Jakubs Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Sjá meira