Eitt umferðaróhapp stöðvaði umferð á háannatíma í Reykjavík í gær Birgir Olgeirsson skrifar 20. september 2016 10:40 Þetta er árlegur viðburður,“ segir Ómar Smári Ármannsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um umferðartafir á þessum árstíma. Vísir
Mikill umferðarþungi hefur verið á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar vikur þegar fólk er að fara í og úr vinnu. Lítið má út af bregða þegar þannig ástand er á helstu leiðum eins og sást síðdegis í gær þegar umferðaróhapp á Höfðabakka varð til þess að langar raðir mynduðust í Ártúnsbrekkunni sem náðu vestur eftir Miklubrautinni. Reyndu margir að finna sér leið fram hjá þeirri röð og urðu því langar raðir á á þeim leiðum einnig. Má segja að ástandið hafi verið hvað verst um á fimmta tímanum í gær og náði alveg fram á sjöunda tímann. „Það fór bíll út af veginum við Höfðabakkabrúna. Það tók tíma að koma honum aftur inn á veginn sem varð til þess að það urðu umferðartafir,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, um málið. Engin slys urðu á fólki en einnig varð minniháttar umferðaróhapp á sama tíma í Ártúnsbrekku þar sem ekið var aftan á bíl og tafðist umferð töluvert við það. Ómar Smári Ármannsson, sem fer fyrir umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir umferðina frekar þunga á þessum tíma árs. „Þetta byrjar korter í átta á morgnanna og til korter yfir níu. Svo byrjar þetta korter yfir fjögur síðdegis og til korter yfir sex. Það dregur síðan úr þessu um miðjan október. Þá fer fólk að velja annan tíma og aðrar leiðir til að fara á milli. Þá jafnast þetta út. Þetta er árlegur viðburður,“ segir Ómar Smári. 5. september síðastliðinn var fjallað um umferðarþungann á höfuðborgarsvæðinu í kvöldfréttum Stöðvar 2 en þar voru fengnar tölur frá Vegagerðinni sem sýndu að 6.839 óku vestur um Ártúnsbrekku á milli hálf átta til níu um morgun þann dag. Það eru 912 ökutækjum meira en óku um sama vegarkafla dagana 8. og 15. ágúst samanlagt, en þó óku 5.927 ökutæki þar um. Guðbrandur Sigurðsson, hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði að umferðarþunginn veki áhyggjur hjá viðbragðsaðilum sem þurfa að komast leiðar sinnar þegar þörf er á. Eins og staðan er núna geti það reynst erfitt. Sérstaklega þar sem það geti tekið langan tíma að komast að Landspítalanum í Fossvogi og við Hringbraut.
Tengdar fréttir Hafa áhyggjur af því að koma slösuðu eða veiku fólki ekki á sjúkrahús Umferðin hefur þyngst gífurlega á einungis nokkrum vikum. 5. september 2016 21:06 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Sjá meira
Hafa áhyggjur af því að koma slösuðu eða veiku fólki ekki á sjúkrahús Umferðin hefur þyngst gífurlega á einungis nokkrum vikum. 5. september 2016 21:06