Hnakkrífast vegna búvörusamninganna Birgir Olgeirsson skrifar 3. mars 2016 23:51 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra láta sér nægja að "hrauna“ í allar áttir í umræðum um búvörusamninga. Vísir
Forsætisráðherra og forseti Alþýðusambands Íslands hafa deilt hart á hvor annan vegna búvörusamninganna í dag.Fyrr í dag skoraði miðstjórn ASÍ á Alþingi að hafna búvörusamningum og sagði þessa samninga fela í sér óbreytt ástand næstu tíu árin og muni ekki bæta hag neytenda. Gagnrýndi miðstjórnin harðlega skort á samráði við undirbúning búvörusamninganna og hafi það meðal annars birst í því að nefnd sem átti að vinna að stefnumótun í mjólkurframleiðslu var lögð niður og aldrei kölluð saman eftir að skýrsla um stöðu og horfur í mjólkurframleiðslu kom út.Búvörusamningar gerðir „bak við luktar dyr“ „Síðan þá hefur Alþýðusambandið enga aðkomu haft að undirbúningi búvörusamninga en það verður að teljast stórundarlegt, í ljósu gríðarlegra hagsmuna launafólks og neytenda, að búvörusamningar séu gerðir bak við luktar dyr,“ segir í ályktun miðstjórnarinnar. Þar kemur einnig fram að það hafi lengi verið skoðun ASÍ að þörf sé á auknum innflutningi landbúnaðarvara og þar af leiðandi aukinni erlendri samkeppni til að veita aðhald á markaði með íslenskar landbúnaðarvörur, markaði sem einkennist af fákeppni og einokun.Sigmundur Davíð málið ekki snúast um að verja bændur heldur samvinnu ólíkra stétta.vísir/vilhelmSegir forseta ASÍ skammast yfir því að fá ekki að skipta sér afSigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ritaði svar á vef sinn þar sem hann sagði Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, skammast yfir því að hafa ekki fengið að skipta sér nógu mikið af samningum við bændum. „Á þá formaður Bændasamtakanna að troða sér að samningaborðinu hjá öðrum stéttarfélögum og mæla fyrir um hversu mikið megi greiða hinum og þessum stéttum og með hvaða hætti? Ætti formaður Bændasamtakanna að bölsótast yfir því að það sé ómögulegt að menn séu bundnir af þessum íslensku kjarasamningum þegar erlent vinnuafl sé til í að vinna sömu vinnu á lægra verði,“ spurði Sigmundur.Snýst ekki um að verja bændur heldur samvinnu ólíkra stétta Hann spurði jafnframt Gylfa hver kjör þeirra eru sem starfa við framleiðsluna sem hann vill að fái betri tækifræi til að keppa við framleiðslu þeirra sem starfa í greininni á Íslandi? „Telur hann að þeir sem starfa þar á lægstu töxtum búi við betri, jafngóðar eða verri aðstæður og kjör en fólk sem við myndum á Íslandi kalla fórnarlömb mansals? Það væri auðvitað hægt að ná sama markmiði með því að hafa bara nokkur risabú á Íslandi með vinnuafli sem fengi greitt samkvæmt kjarasamningum í Bangladesh,“ skrifaði Sigmundur og sagði þetta málið ekki snúast um að verja bændur heldur samvinnu ólíkra stétta.„Hann um það en þjóðin verðskuldar annað,“ segir Gylfi Arnbjörnsson um forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm„Hvar endar það ef við sættum okkur við að vegið sé að einni stétt í einu til að bæta kjör hinna? Reyndar er það ekki einu sinni svo að það að hætta stuðningi við innlenda matvælaframleiðslu bæti kjör annarra hópa. Á endanum myndi það þýða aukið gjaldeyristap og hærri álagningu á hinum innfluttu matvælum eins og menn hafa kynnst í löndum sem gert hafa tilraunir í þessa veru.“Skrýtin útgáfa af samvinnu Gylfi Arnbjörnsson svaraði Sigmundi á Facebook-síðu sinni í kvöld þar sem hann sagði það vera skrýtna útgáfu af þeirri sem samvinnu sem forsætisráðherrann lýsir þegar þeir sem mesta hagsmuni hafa af málinu fá hvorki að lýsa áhyggjum sínum né leggja til aðrar leiðir. „En bara svo forsætisráðherra viti það, og vegna þess að okkur hefur ekki verið gefið neitt tækifæri á því að leggja okkar tillögur fram, þá hefur ASÍ í meira en tvo áratugi lagt til að auka verulega beinan stuðning við bændur en draga á móti úr innflutningsverndinni (ofurtollunum),“ skrifar Gylfi. Hann segir að við það myndu erlendir markaðir opnast og bændur og afurðarstöðvar þeirra sótt fram fremur en að pakka í vörn. „Sem er ekkert annað en bitur fátækt og eymd! En þetta hefur þessi ágæti forsætisráðherra okkar ekki haft áhuga á að ræða og lætur sér nægja að „hrauna“ í allar áttir. Hann um það en þjóðin verðskuldar annað.“
Tengdar fréttir Formaður Bændasamtakanna: "Við höfum ekkert að fela“ Sindri Sigurgeirsson setti Búnaðarþing í Hörpu við hátíðlega athöfn. 28. febrúar 2016 17:56 Segir búvörusamninga ekki þjóna neytendum Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði, segir að samningarnir komi í jafnvel í veg fyrir eðlilega þróun innan landbúnaðarins. 1. mars 2016 12:09 Hafnar ásökunum um skort á samráði Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafnar algjörlega fullyrðingum um að samningar um 131 milljarðs greiðslur á tíu árum vegna búvörusamnings hafi verið samþykktir án samráðs. 25. febrúar 2016 07:00 Forsætisráðherra gagnrýnir gagnrýni á nýjan búvörusamning Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að gagnrýni á bændur og landbúnað langt út í haga með samanburði á milli nýs búvörusamnings og Icesavesamnings. 20. febrúar 2016 16:22 ASÍ skorar á Alþingi að hafna búvörusamningum Stórundarlegt að búvörusamningar séu gerðir bakvið luktar til, segir ASÍ. 3. mars 2016 11:31 Segir nefnd um búvörusamninga aldrei hafa komið saman Ragnheiður Ríkharðsdóttir gagnrýnir Sigurð Inga Jóhannsson landbúnaðarráðherra fyrir samráðsleysi og ógegnsæja ákvarðanatöku í aðdraganda undirritunar búvörusamninganna. 28. febrúar 2016 11:15 Verð á landbúnaðarvörum gæti lækkað um allt að helming með afnámi tolla Verð á landbúnaðarvörum gæti lækkað um allt að helming með afnámi tolla. Þetta kom fram á fundi um búvörusamninga í morgun en forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands segir að nýju samningarnir stuðli að óbreyttu kerfi og þjóni ekki neytendum. 1. mars 2016 18:45 Viðskiptaráð hvetur Alþingi til að hafna búvörusamningum Ráðið lýsir yfir vonbrigðum með nýja búvörusamninga. 24. febrúar 2016 10:38 Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Fleiri fréttir Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Sjá meira
Formaður Bændasamtakanna: "Við höfum ekkert að fela“ Sindri Sigurgeirsson setti Búnaðarþing í Hörpu við hátíðlega athöfn. 28. febrúar 2016 17:56
Segir búvörusamninga ekki þjóna neytendum Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði, segir að samningarnir komi í jafnvel í veg fyrir eðlilega þróun innan landbúnaðarins. 1. mars 2016 12:09
Hafnar ásökunum um skort á samráði Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafnar algjörlega fullyrðingum um að samningar um 131 milljarðs greiðslur á tíu árum vegna búvörusamnings hafi verið samþykktir án samráðs. 25. febrúar 2016 07:00
Forsætisráðherra gagnrýnir gagnrýni á nýjan búvörusamning Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að gagnrýni á bændur og landbúnað langt út í haga með samanburði á milli nýs búvörusamnings og Icesavesamnings. 20. febrúar 2016 16:22
ASÍ skorar á Alþingi að hafna búvörusamningum Stórundarlegt að búvörusamningar séu gerðir bakvið luktar til, segir ASÍ. 3. mars 2016 11:31
Segir nefnd um búvörusamninga aldrei hafa komið saman Ragnheiður Ríkharðsdóttir gagnrýnir Sigurð Inga Jóhannsson landbúnaðarráðherra fyrir samráðsleysi og ógegnsæja ákvarðanatöku í aðdraganda undirritunar búvörusamninganna. 28. febrúar 2016 11:15
Verð á landbúnaðarvörum gæti lækkað um allt að helming með afnámi tolla Verð á landbúnaðarvörum gæti lækkað um allt að helming með afnámi tolla. Þetta kom fram á fundi um búvörusamninga í morgun en forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands segir að nýju samningarnir stuðli að óbreyttu kerfi og þjóni ekki neytendum. 1. mars 2016 18:45
Viðskiptaráð hvetur Alþingi til að hafna búvörusamningum Ráðið lýsir yfir vonbrigðum með nýja búvörusamninga. 24. febrúar 2016 10:38