Vill ekki afsökunarbeiðni frá Cameron Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2016 17:37 David Cameron og Muhammadu Buhari. Vísir/EPA
Muhammadu Buhari, forseti Nígeríu, segist ekki vilja afsökunarbeiðni frá David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Cameron hafði lýst Nígeríu sem einstaklega spilltu landi í samtali sínu við drottningu Bretlands, en samtalið náðist á upptöku.Buhari, sem sækir nú heim ráðstefnu gegn spillingu í Bretlandi, segir Cameron hafa rétt fyrir sér. Hann er tiltölulega nýr í forsetastóli og hefur einsett ríkisstjórn sinni að berjast gegn spillingu þar í landi.Sjá einnig: David Cameron við drottningu Bretlands: „Hingað eru að koma leiðtogar svaka spilltra ríkja“ „Hann var að segja sannleikann,“ sagði Buhari við BBC. Varaforseti Nígeríu sagði í síðustu viku að um 15 milljörðum dala hefði verið stolið á tímum fyrri ríkisstjórnar landsins. Það hefði verið gert í tengslum við vopnasamninga. Þá var komist að því í mars að olíufyrirtæki ríkisins hefði komist hjá því að greiða 25 milljarða dala í sektir. Í ræðu sinni á ráðstefnunni í London sagði Buhari að spilling væri marghöfða skrímsli sem ógnaði öryggi ríkja og greindi ekki á milli þróunarríkja og annarra. Hann lofaði yfirvöld í Bretlandi fyrir hjálp þeirra við tilraunir til að endurheimta stolið fé sem geymt er í breskum bönkum. Hann sagðist ekki vilja afsökunarbeiðni, heldur frekari hjálp við að endurheimta áðurnefnt fé
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira