Sjálfstæðismenn vilja setja á ráðningabann Snærós Sindradóttir skrifar 11. maí 2016 07:00 Borgarfulltrúar ræddu á fundi í gær um fjárhagsáætlun borgarinnar. Þar kom fram sú skoðun borgarfulltrúa meirihlutans að borgin sé vel rekin. vísir/Ernir
Stjórnmál „Ég hef alltaf lagt áherslu á að það eigi að koma ráðningabann. 212 auka stöðugildi er óútskýrð hækkun og bara þau eru einn og hálfur milljarður á ári,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavíkurborg. Fyrir liggur að Reykjavíkurborg þarf að ráðast í mikinn niðurskurð til að rétta rekstrarhalla borgarinnar við.Samkvæmt rekstrarreikningi borgarinnar var rekstrarniðurstaða A- og B-hluta reikningsins neikvæð um nærri fimm milljarða króna. Áætlað var að niðurstaðan yrði jákvæð um nærri 7,4 milljarða. Í ársreikningi borgarinnar kemur fram að þetta skýrist að stórum hluta af auknum og óvæntum lífeyrisskuldbindingum. „Við eigum ekki að láta þessar reiknistærðir þvælast fyrir okkur og byrgja okkur sýn. Hækkun lífeyrisskuldbindinga í ár kemur til út af kjarasamningum og af því að stærðfræðingar hafa ákveðið að reikna út frá hærri lífaldri,“ segir Halldór. Lausnir Sjálfstæðisflokksins felist, eins og áður segir, í ráðningabanni. „Það hætta margir á ári og við eigum að nýta okkur það í stað þess að reka fólk. En ef þetta heldur svona áfram þá þýðir það hagræðingaraðgerðir og uppsagnir.“ Þá segir Halldór að fresta hafi mátt framkvæmdum í borginni, svo sem þrengingu á Grensásvegi og uppbyggingu við Borgarbókasafn.S. Björn BlöndalBjörn Blöndal, formaður borgarráðs, segir að vissulega hafi starfsmönnum borgarinnar fjölgað á síðustu árum. „Að hluta til má rekja það til þess að búið var að ganga nærri því starfsfólki sem var fyrir. Það má segja að við höfum gefið örlítinn slaka til að finna út hver er raunveruleg þörf á starfsmönnum.“ Hann segir að sviðsstjórum verði falið að meta raunverulega þörf sína. „Við höfum verið með ráðningarrýni sem byggir á því að metið sé gaumgæfilega ef starf losnar hvort hægt sé að komast af án þess að ráða í það aftur. Ef einhver telur að búa þurfi til nýtt starf er þörfin á því sömuleiðis rýnd mjög náið. Ég hef ekki orðið var við það að fólk innan borgarkerfisins sé ekki að gera neitt en það verður auðvitað að gæta aðhalds við starfsmannahald í svona stóru batteríi fyrir átta þúsund starfsmenn.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 11. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira