Þyrla með þrettán innanborðs hrapaði í grennd við Bergen Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. apríl 2016 11:04 Óvíst er um afdrif farþega og áhafnar. Vísir/Getty
Þyrla með þrettán manns innanborðs hrapaði undan ströndum Vestur-Noregs í grennd við Bergen í morgun. Yfirvöld segja að þrettán hafi verið um borð í þyrlunni, ellefu farþegar og tveir í áhöfn. Var hún á leið frá olíuborpalli í Norðursjó til Bergen. Yfirvöld hafa staðfest að lík hafi fundist á slysstað. Fjölmennt björgunarlið er að störfum og segjast yfirvöld ekki hafa gefið upp von um að finna einhvern sem var um borð í þyrlunni á lífi. Spaðar vélarinnar hafa fundist á landi en skrokkur þyrlunnar er á 7,6 metra dýpi. Kafarar eru nú að störfum á slysstað ásamt fjölmennu liði björgunaraðila.13.20 - Staðfest hefur verið að ellefu hafi látist í slysinu. Nánar má lesa um það hér. Mynd af slysstað af forsíðu AftenpostenMynd/AftenpostenÞyrlan, sem var af gerðinni Eurocopter EC-225 Super Puma, hrapaði í grennd við eyjuna Turøy um klukkan tíu að íslenskum tíma. Sjónarvotta greina frá því þyrluspaðar þyrlunnar hafi fallið af áður en þyrlan skall niður til jarðar. Greina sjónarvottar frá því að mikil sprenging hafi orðið en svo virðist sem að þyrlan hafi hrapað á hólma við eyjuna Turøy. Allt tiltækt lið björgunaraðila var kallað út. Fyrstu fregnir hermdu að einhverjum úr þyrlunni hefði verið bjargað úr sjónum en lögregla segir að enn hafi engin fundist á lífi á slysstað. Greint hefur verið frá því að farþegarnir um borð hafi verið starfsmenn norska olíufyrirtækisins Statoil. Mikil þyrluumferð er á því svæði sem slysið varð til og frá olíuborpöllum á Norðusjó.Hér að neðan má sjá beina útsendingu VG.Kort af svæðinu
Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Fleiri fréttir Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Fjarlægja mælitæki sem fylgist með AMOC nærri Íslandi Frítt til tannlæknis, skattalækkanir og gamall stórhátíðardagur endurvakinn Nýr El niño gæti orðið sá sterkasti sem sögur fara af Ætla að senda fleiri hælisleitendur á brott Skaðabótasjóður Trumps í hættu Ellefu látnir í umfangsmiklum árásum Rússa Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Sjá meira