Lífeyrissjóðadómur gæti fælt fólk frá stjórnarstörfum Ingvar Haraldsson skrifar 29. apríl 2016 07:00 Benedikt Jóhannesson
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli lífeyrissjóðsins Lífsverks gegn VÍS og fyrrverandi stjórn og framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins gæti fælt fólk frá störfum fyrir lífeyrissjóði og haft í för með sér að laun stjórnarmanna lífeyrissjóða þurfi að hækka verulega. Þetta er mat Benedikt Jóhannessonar tryggingastærðfræðings. Fyrrverandi stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins voru dæmd til að greiða lífeyrissjóðnum samanlagt 36 milljónir króna auk dráttarvaxta, samtals ríflega 50 milljónir króna, vegna tveggja fjárfestinga lífeyrissjóðsins á árinu 2008. „Ég held að þetta muni ekki auðvelda að fá fólk til sitja í stjórn lífeyrissjóðs,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, um dóminn. VÍS var einnig dæmt til að greiða lífeyrissjóðnum 1,2 milljarða vegna stjórnendatryggingar lífeyrissjóðsins. „Þetta eru ný skilaboð, auðvitað hafa menn alltaf gert sér grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir stjórnarsetu, en nú er hún orðin fjárhagsleg,“ segir Þorbjörn. Fara þurfi yfir málið þannig að ábyrgð stjórnarmanna sé skýrari en hún sé í dag. „Menn verða þá kannski líka tregari við að taka svona stórar ákvarðanir. Menn reyna að kanna það hvað tryggingin dekkar og taka þá aldrei stærri fjárfestingaákvörðun en það,“ segir Benedikt. Búast megi við því að stjórnarlaun lífeyrissjóða þurfi að hækka þar sem áhætta og ábyrgð sem fylgi starfinu sé meiri en áður hafi verið talið að mati Benedikts. Stjórnarlaun hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum, þar sem Þorbjörn á sæti, eru 88 þúsund krónur á mánuði. VÍS hyggst áfrýja dómnum til Hæstaréttar.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 29. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira