Fluttu Dalpay frá Dalvík vegna ágreinings um hundsbit Jakob Bjarnar skrifar 31. mars 2016 11:05 Atvikið hefur reynst Dalvíkingum afskaplega erfitt og ekki víst að grói nokkru sinni um heilt.
Fyrirtækið Dalpay, sem er fjármálaþjónusta á vefnum, hefur flutt starfsemi sína úr Dalvíkurbyggð og yfir í Ólafsfjörð. Uppgefin ástæða er sérkennileg; ágreiningur sem upp kom vegna hundsbits. Tvíburabræðurnir Baldur og Björn Snorra eiga Dalpay en tíkin Þvæla er í eigu Björns. Björn segir sig, og fjölskyldu sína alla, hafa upplifað margvísleg leiðindi á Dalvík. Sú sé ástæðan fyrir því að þeir fluttu fyrirtækið en útslagið er mál sem tengist hundsbiti. Björn vill reyndar meina að það liggi ekki fyrir hvort um bit sé að ræða. Vísir greindi frá málinu síðastliðið sumar; hundur að tegundinni Briard beit þriggja ára dreng í andlitið. Sauma þurfti þrjú spor í efri vör drengsins sem fór í sundur, auk þess sem hundurinn beit stærra stykki úr sömu vör. Andrúmsloftið á Dalvík hefur verið lævi blandið allt síðan atvikið kom upp. Björn er nú búsettur á Spáni, og hann segir ekki koma til greina að lóga hundinum, málsatvik liggi ekki fyrir og þær forsendur dugi hvergi að hans mati. Hundurinn er sprelllifandi, tíkin Þvæla er nú í pössun í Reykjavík. Foreldrar drengsins, þau Jón Steingrímur Sæmundsson og Elíngunn Rut Sævarsdóttir líta málið ekki sömu augum og telja algerlega fráleitt að halda öðru fram en að hundurinn hafi bitið son sinn. Drengurinn er nú á batavegi, móðir hans segir menn meta það sem svo að lán í óláni hafi verið hversu ungur hann er, en fljótlega verður farið með hann til lýtalæknis og þá verður tekin ákvörðun um hvort hann fer í aðgerð fljótlega eða ekki.Dalpay úr DalvíkBjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri segir erfitt að tjá sig um málið sem slíkt, það hafi reynst erfitt. „Þetta eru persónuleg mál sem erfitt er að höndla og tilfinningar. Fólk hefur ríkar tilfinningar fyrir sínum dýrum,“ segir Bjarni – að ógleymdum börnunum. „Þetta var leiðinlegt og örugglega betra ef slíkt mál hefði aldrei komið upp en svona gerast hlutirnir. Það er bara þannig.“Bjarni sveitarstjóri segir málið hafa reynst Dalvíkingum erfitt og auðvitað muni um að missa Dalpay úr sveitarfélaginu.Spurður hvort ekki muni um að missa vel stætt fyrirtæki úr sveitarfélaginu, sem eins og önnur hljóti að miða að fjölþættri starfsemi, segir Bjarni það auðvitað svo vera. En, til þess beri að líta að Eyjafjörðurinn sé allur eitt atvinnusvæði og allur gangur sé á því hvar lögheimili fyrirtækja sé skráð. Þannig sé til dæmis stærsti atvinnurekandi í Dalvík Samherji, en hann viti ekki betur en fyrirtækið sé með lögheimili við Glerárgötu á Akureyri. „Við búum í frjálsu samfélagi.“ Dalpay er enn með opna skrifstofu í Dalvík. Björn segir að hann sé að íhuga hvort hann flytji starfsemina alfarið úr plássinu, starfsmenn séu hvort sem er fæstir Dalvíkingar. Á skrifstofunni starfa sjö og alls starfa 17 hjá fyrirtækinu.Rekinn af vettvangi á FiskideginumBjörn er nú staddur á Spáni og hann segir málið allt hið erfiðasta og ekki laust við að hann sé niðurdreginn vegna þess hvernig allt þetta æxlaðist og fór. Björn segir að þeir bræður hafi á einhverjum tímapunkti verið að hugsa um að flytja skrifstofuna líka. „Þetta var núningur. Við vorum að lenda í allskonar veseni og leiðindum,“ segir Björn. Þeir bræður eiga þrjá báta sem þeir hafa gert út frá Dalvík en létu flytja yfir á Sauðárkrók þar sem bátarnir voru við festar í vetur. Margir samverkandi þættir urðu til þess að þeir fluttu lögheimili fyrirtækisins, en þeir eru af gamalgrónum Dalvíkurættum.Þvæla er fjögurra ára tík. Þó Briard-hundar séu stórir eru þeir alla jafna ákaflega ljúfir hundar. Og Björn segir ekki koma til greina að lóga henni.„En, þetta með Þvælu gerði útslagið hvað mig varðar. Ég fékk bara nóg, það var ráðist að mér með offorsi. Ég er ekkert að neita því að um bit geti verið að ræða, en það veit enginn hvað gerðist. Það gerðist eitthvað. Ég ákvað að þetta væri ekki réttur staður fyrir mig að vera á,“ segir Björn og rifjar upp að hann hafi verið rekinn með Þvælu af staðnum á Fiskideginum í Dalvík. „Ég var beðinn um að vera ekki með hundinn í bænum, og það þýddi að ég gat ekki verið á Fiskidögum.“Smábæjarbragur á Dalvík„Það er pirringur í mér. Ég vill fá frið með mitt og vil fá að standa með höfuðið hátt. En, ég var að fá allskonar dónaskap og leiðindi, og þetta var bara einhver vitleysa. Það snuggaðist alveg sérstaklega í bróður mínum varðandi þetta. Það grípur mann einhver reiði og við fluttum félagið yfir á Ólafsfjörð. Oft svona smábæjarbragurinn á þessu. Í raun er ég ekki reiður lengur en ég nenni ekki að lenda í deilum.“Björn Snorra. Hann hefur haft vetursetu á Spáni, kann vel við sig þar og stefnir að því að flytja þangað. Hann segist ekki nenna neinum leiðindum.Björn segist ekki vera deilumaður. Þetta hafi verið hundurinn hans og honum þyki vænt um hann. Og það hafi verið deilt um þetta og allskonar leiðindi tengdust því. „Það var farið offari.“Þvælu ekki lógaðÞvæla er fjögurra ára Briard, mjög stór og loðinn hundur. Björn segir það fyrirliggjandi að Briard-hundar séu ljúfir. Hann segir að ekki hafi komið til greina að lóga Þvælu, en margir eru þeirrar skoðunar að það þurfi ekki einu sinni að ræða verði hundar uppvísir af því að bíta. „Sú er hugmyndin, en það er rangt. Hundar bíta við sérstakar aðstæður, ef þeim finnst þeim vera ógnað. Ég er ekkert að neita því, þetta eru hundar, en hún er ekki lausagönguhundar, slapp út og fór til mömmu. Ég veit ekkert hvað gerðist, en vandinn er að þau hin vita það ekki heldur. Henni verður ekkert lógað af því að einhver heldur eitthvað.“Ætlar að flytja til SpánarBjörn segist vera með það á stefnuskránni að flytja alfarið af landi brott og flytja til Spánar. Honum líkar ekki það sem hann segir „blóðlykt“ á Íslandi. Allir séu sekir þar til annað komi í ljós. Og enginn sé spámaður í sínu föðurlandi. Það skynjar hann sterkt á Dalvík. Hann kann vel við sig á Spáni. „Kannski er þetta eins hér, en ég skil ekki spænsku þannig að ég þarf ekki að láta þetta fara fyrir brjóstið á mér.“Þvæla. Birni þykir sannarlega vænt um sinn hund og telur að menn hafi kannski ekki almenniega séð hinn blíða svip vegna þess hversu loðin tíkin er.Björn kemur þó til Íslands og ætlar sér að róa frá Dalvík í sumar. Svo stefnir hann að því að flytja út til Spánar, og taka þá Þvælu með sér. Starfsemi fyrirtækisins sé alþjóðleg, ekki síst í Lichtenstein og þeir voru að ráða tvo starfsmenn sem eru Króatar.Fer ekkert á milli mála að drengurinn var bitinnVísir ræddi jafnframt við foreldra piltsins og þau sjá þetta öðrum augum, sem von er. Þau segja að ekkert fari á milli mála að um hundsbit sé að ræða. Elíngunn segir að fyrir liggi læknisvottorð sem staðfestir að barnið hafi verið bitið. Hann var með tannaför um allt andlitið og yfir höfuðið.Drengurinn daginn eftir atvikið. Foreldrarnir segja ekkert fara á milli mála að hann hafi verið bitinn, það voru vitni og þau hafa læknisvottorð uppá það.„Þau vildu meina að hann hafi dottið og hafi þá bitið bút úr vörinni,“ segir Elíngunn og vísar þá til fjölskyldu Björns. En, hundurinn var gjarnan í pössun hjá móður hans sem býr í sömu raðhúsalengju og Elíngunn og Jón Steingrímur. En, þarna gekk hann laus og leitaði þangað. „Þetta náttúrlega stenst ekki, það væri þá úr neðri vör væntanlega þegar börn detta. Hann hefði þurft að vera með skúffu en bitið er framan á vörunni. Og læknirinn segist gera staðfest að þetta sé ekki eftir fall, eða eggvopn. Það var hundur á svæðinu auk þess sem það voru börn vitni. En, hann vill ekki hlusta á það.“FjölskyldubæjardramaÞau hjón draga ekki úr því að málið hafi reynst erfitt. „Þetta hefur verið hundleiðinlegt mál.“ Aðlar tengjast, eins og óhjákvæmilegt er í litlum bæ. Þannig er til dæmis að afi barnsins er ágætur vinur Björns og þannig má lengi telja. „Fjölskyldubæjardrama.“ Drengurinn hafi verið bitinn í júlí og það er ekki fyrr en eftir áramót sem bærinn fór að róast.Elíngunn með sína öldruðu tík, Ynju. Hún segir að málið hafi sannarlega tekið á -- og verið hundleiðinlegt fjölskyldubæjardrama.„Við töluðum minnst um þetta sjálf en eins og verður oft í svona litlum bæjarfélögum, þá voru margir að koma að tali við mig og vildu að ég færi fram á að hundinum yrði lógað,“ segir Elíngunn. „Ég vildi það ekkert endilega. Ég er dýramanneskja. Björn upplifir þetta sem góðan hund og auðvitað vill maður ekki trúa því að hundurinn sinn geri svona. En, þetta fer ekkert á milli mála, tannaför ofan á hausnum á drengnum, tannaför rennd yfir andlitið. Það eru vitni en það pirrar mig að þau skuli ekki vilja taka mark á því. En, hann vill njóta vafans.“Lausaganga hunda en ekki barna bönnuðElíngunn segir reyndar ýmislegt í málinu sem pirri sig. Hún hafi verið sökuð um að vera vanhæf móðir, að leyfa drengnum að ganga lausum en það sé nú þannig að það sé lausaganga hunda sem sé bönnuð. Hún segir að öll börnin í hverfinu hafi verið dauðhrædd við hundinn og hún fór fram á að hundurinn yrði ekki í pössun í raðhúsalengjunni en Björn býr í hinum enda bæjarins. „Mér fannst ég ekki ósanngjörn. En, þau reyndu að fela hundinn. Þetta endaði með því að mamma fór og ræddi við bæjarstjórann og fór fram á að hundurinn færi úr bænum. Lögreglan kom í sumar og þurfti að fjarlægja hundinn fyrir mig. Krakkarnir þorðu ekkert heim til sín. Og þá fór Björn með hann út í sveit.“ Elíngunn vill meina að Björn hafi verið einna skástur við að eiga í málinu, það voru hins vegar þeir sem honum tengdust sem tóku þessu óstinnt upp.Hjónin Elíngunn og Jón Steingrímur. Þau segja ótrúlega holdfyllingu hafa átt sér stað í vör drengsins en eftir er hart ör og það vill lýtalæknirinn athuga.„Ég var aldrei að sakast neitt við hundinn. Þetta er taugaveiklaður hundur sem á ekki að ganga laus.“Drengurinn slapp ótrúlega velForeldrarnir segja að það muni alltaf sjá á drengnum sem er þó óðum að jafna sig. Þeim var tjáð að það hafi verið lán í óláni að hann hafi verið þetta ungur þegar atvikið kom upp, sár hans gróa vel en fljótlega stendur til að fara með hann til lýtalæknis og þá verði tekin ákvörðun um það hvort ástæða er til að fara í aðgerð með hann, til að laga vörina. Jón segir að lýtalæknirinn hafi viljað fá hann til sín þegar ár væri liðið frá atburðinum. „Hann vildi leyfa líkamanum að sjá um sem mest. Og það varð ótrúleg holdfylling í vörinni, en hann er með stórt ör og það er svo hart. Lýtalæknirinn vill reyna að laga það eitthvað og minnka lýtið,“ segir Jón Steingrímur og bætir því við að miðað við allt hafi sonur hans verið heppinn. „Maður er hissa hvað hann hefur jafnað sig eftir þetta, líka andlega. Hann fær að stjórna því hvernig hann umgengst hunda. Honum var alltaf sagt að hundurinn umræddi væri svo góður og gerði ekki neitt.“
Mest lesið Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Innlent Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Innlent „Vona að þú sofir vel“ Innlent PAP vann stórsigur í Singapúr Erlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Erlent „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent Birti mynd af sér í páfaskrúða Erlent Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Erlent Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Innlent Fleiri fréttir Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Nágrannaerjur, grjótkast og „víðáttuölvuðum“ veitt eftirför Nýtt 44 herbergja hjúkrunarheimili byggt í Hveragerði „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Öskrandi reiður í vandræðum með að leigja rafskútu Glussakerfið ónýtt eftir brunann Hefur áhyggjur af arftaka sínum Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Umtöluð frelsissvipting og stórslösuð sjónvarpsstjarna Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ „Vona að þú sofir vel“ Eldur í ruslabíl vestur í bæ Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Mannréttindadómstóllinn blandar sér í Vatnsendamálið „Mér finnst þetta ómöguleg framkoma“ Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Óljóst hvers vegna ferðamanni var haldið í gíslingu Borgarstjóri sé brennuvargur en Framsókn í slökkviliðinu „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Sjá meira