Opið bréf til formanns skóla- og frístundaráðs Inga Hanna Dagbjartsdóttir skrifar 14. maí 2016 07:00 Sæll Skúli. Eftir lestur greinar sem þú birtir í Fréttablaðinu þann 9. maí get ég ekki lengur orða bundist. Ég er starfandi dagforeldri og hef haft leyfi frá borginni til þrjátíu ára. Í ritum þínum virðist þú ekki vita af þeirri þjónustu sem dagforeldrar hafa upp á að bjóða og virðist ekki vita af þeirri stétt. Alla vega erum við aldrei nefnd þegar verið er að ræða um vistun barna undir tveggja ára aldri. Gott dæmi um hvernig þið vinnið hjá leikskólasviði er þegar dagforeldrar lesa í blöðum eða heyra í fjölmiðlum um það að 18 mánaða börn fara í leikskóla í ágúst án þess svo mikið að kynna það fyrir dagforeldrum. Á þessum tíma hafa dagforeldrar verið að skipuleggja starfið fyrir haustið og reikna með þeim börnum sem áætlað er að taka inn á leikskólana. Enn og aftur lesum við um breytingar í blöðum. Þú talar um að lengja fæðingarorlof í 12 mánuði og að börn verði tekin inn á leikskóla undir 18 mánaða aldri ef pláss gefst. Félög dagforeldra hafa ítrekað krafið Reykjavíkurborg um hærri niðurgreiðslur til foreldra með börn í vistun hjá dagforeldrum en ávallt fengið þau svör að engir peningar væru til. Þarna er ekki verið að hlúa að barnafjölskyldum eins og fram kemur í pistlinum í Fréttablaðinu. Einarður vilji er hins vegar til staðar hjá ykkur í meirihluta borgarinnar að setja ómálga og ósjálfbjarga börn inn á stofnun, þar sem hætturnar bíða þeirra, ef tekið er mið af því öryggi sem þau búa við í heimilislegu umhverfi hjá dagforeldrum. Nú var borgin (skóla- og frístundasvið) að senda dagforeldrum könnun sem þeir eiga svara m.a. um meira samstarf. Með þessu er verið að draga dagforeldra á asnaeyrunum með því að borgin vill fara að gæðastýra starfseminni og ekki vantar að alltaf er verið að tala um meira og meira samstarf. Finnst þér Skúli þetta boðlegt heilli starfstétt, sem telur yfir 200 manns hér í Reykjavík og þú virðist ekki vita um. Ég skora á þig Skúli að bjóða dagforeldrum til fundar við þig, þar sem þú skýrir út fyrir þeim hvar þeir peningar séu til, sem hægt er að nota í þessar breytingar sem þú hefur í hyggju að gera á vistun ungbarna. Það kæmi mér ekki á óvart að dagforeldrar færu að skila inn leyfum sínum til að finna öruggara starfsumhverfi og leyfðu þér að fá í fangið þau börn sem annars yrðu vistuð hjá þeim.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar