Gripinn með íslensk hvalbein í Baltimore Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. febrúar 2016 15:13 Hér gefur að líta beinin sem maðurinn var með í töskum sínum. Mynd/bandaríska tollgæslan (U.S. Customs and Border Protection)
Hvalbein í fórum ferðamanns sem var nýkominn frá Íslandi voru gerð upptæk meðan staðreynt er hvort þau séu úr tegundum sem eru á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Tollverðir á Baltimore Washington International flugvellinum í Baltimore gerðu athugasemdir við farangur farþega sem þar lenti eftir flug frá Íslandi þegar hvalbein fundust í töskum hans. Wow Air flugfélagið flýgur beint á BWI flugvöllinn í Baltimore. Bandaríska dagblaðið Baltimore Sunfjallar um málið og greinir frá því að manninum hafi verið sleppt að lokinni yfirheyrslu en hvalbeinin hafi verið haldlögð. Bandarísk alríkislög og alþjóðalög banna innflutning beina úr dýrategundum sem eru í útrýmingarhættu. Tollverðir í Baltimore eru að staðreyna hvort beinin séu úr slíkri tegund og ef svo reynist ekki vera fær maðurinn beinin afhent á ný. Að sögn Gísla Víkingssonar hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun hafa allar hvalategundir sem heyra undir Alþjóðahvalveiðiráðið verið flokkaðar á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Þar með eru allar hvalategundir í íslensku efnahagslögsögunni á listanum, jafnvel þótt margar þeirra eins og til dæmis hrefna séu í raun ekki í útrýmingarhættu og Íslendingar stundi sjálfbærar veiðar á þeim. Gísli segir því mjög líklegt að umrædd bein séu á lista yfir bein sem óhemilt sé að flytja milli landa. Gísli segir jafnframt að mikil skriffinnska fylgi heimildum um flutning beina sem finnast á víðavangi, til dæmis við strendur.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira