Hagstæðustu vindarnir fyrir vélarnar beint yfir suðvesturhorninu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. febrúar 2016 18:20 Reikna má með 700 vélar fari um íslenska flugstjórnarsvæðið um helgina og margar þeirra fara um suðvesturhornið vegna hagstæðra vinda. vísir/kristjana
Fjöldi flugvéla sem flogið hefur yfir höfuðborgarsvæðið í dag og í gær hefur vakið athygli en reikna má með að um 700 vélar fari um íslenska flugstjórnarsvæðið þessa tvo daga. Margar þeirra hafa farið um suðvesturhornið vegna hagstæðrar vindáttar. „Í dag eru í raun sömu aðstæður og í gær. Hagstæðustu vindarnir eru hérna beint yfir suðvesturhorninu og svo er mjög gott skyggni þannig að maður tekur meira eftir þessu en vanalega,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við Vísi. Hann segir að í gær hafi 316 vélar farið um íslenska flugstjórnarsvæðið og í dag stefnir í að þær verði alls 390. Guðni segir fjöldann í sjálfu sér ekki óvenjulegan þar sem að meðaltali fara um 400 flugvélar um svæðið á sólarhring. Allt árið í fyrra fóru 145891 vélar um íslenska flugstjórnarsvæðið samkvæmt vef Isavia en mikill hluti þeirrar umferðar er milli Evrópu og Ameríku. „Það er mismunandi eftir háloftavindum hvort að vélarnar milli Evrópu og Ameríku fari um íslenska flugstjórnarsvæðið eða það skoska. Þegar hagstæðustu vindarnir eru hjá okkur þá elta þær þá hingað og öfugt.“ Íslenska flugstjórnarsvæðið er stórt og nær til að mynda yfir meirihluta Grænlands og Norðurpólinn. Þannig er til að mynda aukin flugumferð yfir Norðurpólinn frá Asíu til Ameríku. „Flugleiðin New York-Hong Kong er þannig orðin nokkuð algeng innan svæðisins,“ segir Guðni.
Tengdar fréttir Fjöldi flugvéla nýtir meðvindinn yfir landinu til að komast til Norður-Ameríku "Þær koma hérna á 64. breiddargráðu beint yfir Ísland.“ 13. febrúar 2016 18:08 Mest lesið Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Erlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Veður „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Fleiri fréttir Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Sjá meira
Fjöldi flugvéla nýtir meðvindinn yfir landinu til að komast til Norður-Ameríku "Þær koma hérna á 64. breiddargráðu beint yfir Ísland.“ 13. febrúar 2016 18:08