Rannsaka skjálftavirkni við Húsmúla Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 19. september 2016 13:12 Markmiðið er að finna út hvort skjálftarnir tengist niðurdælingu vinnsluvatns frá Hellisheiðarvirkjun. Vísir/Vilhelm
Sérfræðingar Orkuveitu Reykjavíkur og Orku náttúrunnar fara nú yfir skjálftavirkni helgarinnar við Húsmúla á Hengilssvæðinu. Sérfræðingar á Veðurstofunni og í vísindasamfélaginu koma einnig að greiningunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Markmiðið með greiningunni er að komast að því hvort að skjálftarnir tengist niðurdælingu vinnsluvatns frá Hellisheiðarvirkjun. Breytingar á skipulagi niðurdælingar geta orsakað svokallaða gikkskjálfta. Engar breytingar hafa hins vegar verið gerðar á niðurdælingunni upp á síðkastið og kallar hrinan því á ítarlega greiningu allra gagna. Niðurdæling vatns hefur tvíþættan tilgang. Annars vegar að draga úr umhverfisáhrifum á yfirborði, með því að vinnsluvatnið er ekki losað þar. Hins vegar eflir niðurdælingin sjálfbærni nýtingu jarðhitaauðlindarinnar þegar vinnsluvatni er skilað aftur niður í jarðlög þar sem það hitnar á ný.Vatnið getur virkað eins og smurning Í tilkynningu Orkuveitunnar kemur fram að við borun á jarðhitasvæðum sé leitast við að finna lekar jarðmyndanir eins og sprungur og misgengi. Sé spenna í sprungunum sem dælt er niður í getur vatnið virkað líkt og smurning þannig að spennan losnar með skjálftum í nánasta umhverfi við niðurdælinguna. Slíkir skjálftar eru kallaðir gikkskjálftar og eru oftast það smáir að þeir finnast ekki. Frá því að Hellisheiðarvirkjun var tekin í notkun árið 2006 hefur vinnsluvatni frá virkjuninni verið dælt niður í jarðhitageymi. Dælt er niður á tveimur stöðum, við Gráuhnúka og Húsmúla. Um 700-800 lítrum er dælt niður á sekúndu. Árið 2011 urðu gikkskjálftar við Húsmúla, en þá hafði vatnið virkað eins og smurning og losað um spennu í jarðlögunum. Í kjölfarið var tekið upp verkleg um að forðast snöggar breytingar á högun niðurdælingar og að láta almenning og yfirvöld vita fyrir fram þegar breytingar væru gerðar á niðurdælingu.
Tengdar fréttir Stærstu skjálftarnir í Hellisheiðarhrinunni fundust í kvöld Þeirra varð vart í Hveragerði, Mosfellsbæ og Kópavogi. 18. september 2016 23:24 Jarðskjálfti á Hengilssvæðinu Jarðskjálfti af stærð 3,1 mældist á Hengilssvæðinu um klukkan átta í morgun. 18. september 2016 09:55 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Sjá meira
Stærstu skjálftarnir í Hellisheiðarhrinunni fundust í kvöld Þeirra varð vart í Hveragerði, Mosfellsbæ og Kópavogi. 18. september 2016 23:24
Jarðskjálfti á Hengilssvæðinu Jarðskjálfti af stærð 3,1 mældist á Hengilssvæðinu um klukkan átta í morgun. 18. september 2016 09:55