Viðlagakassi þarf að vera á hverju heimili Birta Björnsdóttir skrifar 13. febrúar 2016 19:06 Kassinn inniheldur allar helstu nauðsynjar til að bregðast við neyðarástandi.
Yfirskrift átaksins, 3 dagar, vísar til þess að viðlagakassinn svokallaði innihaldi hluti sem geri einstaklingum og fjölskyldum kleift að vera sjálfum sér nægar í þrjá daga, eigi sér stað rof á innviðum. „Við erum að fara í þetta fyrir það fyrsta vegna þess að Land Rover verksmiðjurnar í Bretlandi, með aðkomu B&L á Íslandi, styrkja okkur til verkefnisins. Svo eru bara mýmörg dæmi í Íslandssögunni um mikilvægi þess að vera vel undirbúin,” segir Hjálmar Karlsson, verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum. Í viðlagakassann fara meðal annars hreinlætisvörur, langbylgjuútvarp, vatn og matur með langt geymsluþol, kerti og eldspítur, viðgerðarlímband, leikföng og spil, vasaljós og rafhlöður, vasahnífur, auka fatnaður og teppi svo fátt eitt sé nefnt. Rauði krossinn mun á næstunni halda fræðslufundi víða um land tengt átakinu og ætla einnig inn í alla grunnskóla landsins. „Við ætlum að gera þetta lifandi og skemmtilegt fyrir grunnskólanema og leyfum þeim að handfjatla það sem í kassanum er. Vonandi koma þau svo heim til sín að fræðslu lokinni og hvetja foreldra og aðra til að setja saman viðlagakassa," segir Hjálmar. Hjálmar segir jafnframt mikilvægt að hvert heimili komi sér upp heimilisáætlun, svo allir séu meðvitaður um hvernig bregðast megi við ef upp koma neyðartileflli. Allar upplýsingar um viðlagakassann og heimilisáætlun má nálgast á vefsíðunni www.3dagar.is. „Það er mjög mikilvægt að þessi kassi fyrirfinnist á hverju heimili. Það sem í honum er má svo eiginlega allt finna á hverju heimili. Aðal málið er að safna þessu saman á einn stað þar sem allir heimilismenn geta gengið að kassanum vísum," segir Hjálmar.
Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Innlent Fleiri fréttir Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Sjá meira