Bæjarstjóri segir tímaspursmál hvenær banaslys verður á hættulegum gatnamótum í Hafnarfirði Ásgeir Erlendsson skrifar 13. febrúar 2016 20:41
Það er tímaspursmál hvenær banaslys verður á gatnamótum Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar, segir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Hann hefur lengi varað við þessum gatnamótum en talað fyrir daufum eyrum. Alvarlegt slys varð þar í vikunni. Ásgeir Erlendsson. Íbúar Vallahverfissins í Hafnarfirði eru tæplega 5000 og að auki hafa ýmis fyrirtæki umtalsverða starfsemi á svæðinu. Haraldur L. Haraldsson hefur ítrekað bent stjórnvöldum á hættuna sem af gatnamótunum getur skapast enda mikill umferðarþungi og hraði á Reykjanesbrautinni. Hann hefur þrívegis farið á fund innanríkisráðherra og krafist úrbóta. „Eins og gatnamótin eru núna þá held ég að sé stórhætta á slysi. Líka er aðkoman í hverfinu stórhættuleg, líka töf fyrir slökkvilið og svo framvegis. Þetta er stórhættulegt og við gerum þá kröfu að framkvæmdir hefjist við þess gatnamót núna á þessu ári,“ segir Haraldur. Í vikunni varð alvarlegt umferðaslys en Haraldur segir bæjaryfirvöld lengi reynt að flýta fyrir úrbótum til að koma í veg fyrir slík slys. Í svari sem bæjarstjórnin fékk frá Vegagerðinni segir að endurskoðun samgönguáætlunar fyrir árið 2016 standi yfir og ólíklegt þyki að fjárveiting fáist í verkefnið fyrr en árið 2018 en það er allt of seint að mati Haraldar. „Það er ekki til umræðu og að sjálfsögðu er það ekki Vegagerðin sem tekur ákvörðun um fjármagn heldur þingmennirnir okkar og við gerum kröfu til þingmanna þessa kjördæmis að þeir sjái til þess að framkvæmdir hefjist hér á þessu ári.“
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira