Hjartaþræðingardeild á pari við samskonar norrænar deildir Ásgeir Erlendsson skrifar 13. maí 2016 19:30
Aðstaða á hjartaþræðingardeild Landspítalans er orðin sambærileg því sem gerist á sjúkrahúsum annars staðar á norðurlöndunum en nýtt hjartaþræðingartæki var tekið í notkun í dag. Forstjóri spítalans segir himin og haf á milli ástandsins í tækjamálum nú og fyrir örfáum árum. Nýja tækið var formlega tekið í notkun við hátiðlega athöfn á Landspítalanum við Hringbraut í dag. Gjafa- og styrktarsjóður Jónínu S. Gísladóttur gerir Landspítala kleift að kaupa hjartaþræðingartækið en tækið kostar um 100 milljónir króna. Þetta er annað hjartaþræðingartækið sem er tekið í notkun á spítalanum á síðustu þremur árum. Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir, yfirlæknir hjartaþræðinga, segir nýja tækið mikla bragarbót. „Þetta er auðvitað frábær viðbót og við höfum núna yfir góðum tækjakosti að búa. Við höfum núna þrjár mjög góðar hjartaþræðingarstofur. “ Sigfús Gizurarson, hjartalæknir, segist ánægður með nýja tækið enda hafi gamla tækið verið komið til ára sinna. „Það var farið að geisla svolítið mikið og hætt að hreyfa það liðlega. Vinnan okkar verður hraðari, öruggari og betri.“ Ríkisstjórnin hefur frá árinu 2013 ráðstafað töluverðu fjármagni til tækjakaupa á Landspítalanum. Páll Matthíasson,forstjóri spítalans, segir ástandið í tækjamálum hafa stórbatnað og aðstaðan á hjartaþræðingadeild sé orðin sambærileg samskonar deildum á þeim norrænu sjúkrahúsum sem Landspítalinn beri sig saman við. „Það er alveg himin og haf á milli þess núna ástandsins sem var fyrir fjórum, fimm árum. Nú sýnist okkur að áfram eigi að tryggja fjármagn til tækjakaupa sem skiptir sköpum.“
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira