Milljónamæringar í New York vilja borga hærri skatta Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. mars 2016 23:32 New York-borg er fjölmennasta borgin í New York-ríki vísir/getty
Fjörutíu milljónamæringar í New York-ríki í Bandaríkjunum rita í dag opið bréf til ríkisstjórans Andrew Cuomo þar sem þeir biðla til hans að breyta skattalöggjöfinni í ríkinu svo að þeir ríku myndu borga meira til samfélagsins. „Sem íbúar í New York sem bæði hafa lagt sitt af mörkum til efnahagsins í ríkinu og notið góðs af honum þá lítum við svo á að við berum þá ábyrgð að leggja meira af mörkum til samfélagsins,“ segir meðal annars í bréfinu. Í bréfinu leggja milljónamæringarnir til ákveðna áætlun sem þeir kalla „Áætlun 1 prósentsins um sanngjarnar skattgreiðslur“, en nafnið vísar í eitt prósent þeirra sem eiga mestan auð í heiminum. Milljónamæringarnir segjast hafa miklar áhyggjur af stöðu mála í New York þar sem of margir íbúar ríkisins búi við fátækt og innviðir samfélagsins ráða illa við vandamálin. „Það er til skammar að aldrei hafa fleiri börn búið við fátækt í New York en einmitt nú [...]. Aldrei hafa fleiri fjölskyldur verið heimilislausar en meira en 80 þúsund manns eru á vergangi um ríkið og reyna að lifa af,“ segir í bréfinu. Á meðal þeirra sem rita undir bréfið eru Steven Rockefeller, sem er af fjórðu kynslóð hinnar vellauðugu Rockefeller-fjölskyldu, o gJoshua Mailman, sonur Joseph Mailman, sem var viðskiptajöfur og þekktur fyrir góðgerðarstarfsemi sína.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Sjá meira