Innlent

Getur maður orðið háður því að "snúsa?“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Margir nota vekjaraklukkuna í símanum til að snúsa.
Margir nota vekjaraklukkuna í símanum til að snúsa. vísir/getty
Margir kannast eflaust við það að „snúsa“ í morgunsárið og fresta því þannig að fara á fætur en þegar maður „snúsar“ slekkur maður á vekjaraklukkunni í nokkrar mínútur en klukkan hringir svo aftur. Margir nota vekjaraklukkuna í símanum og er hægt að gera þetta misoft eftir símum en einnig er hægt að snúsa á nýlegum vekjaraklukkum.

Blaðamaðurinn sem þetta ritar er grimmur snúsari og lék forvitni á að vita, ekki síst í tilefni af alþjóðlega svefndeginum sem er í dag, hvort að hægt sé að verða háður snúsinu. Erla Björnsdóttir, doktor í líf-og læknavísindum og varaformaður Hins íslenska svefnrannsóknarfélags, segir að þær rannsóknir sem hafi verið gerðar á snúsi sýni að það sé ekki neitt sérstaklega hollt fyrir okkur.

„Þegar við erum að snúsa þá erum við að vakna og erum í raun og veru að senda líkamanum þau skilaboð að nú eigi hann að vakna og svo sofnum við aftur en þá getum við fallið inn í djúpan svefn. Það er yfirleitt það svefnstig sem við förum fljótt inn í þegar við sofnum þannig að næst þegar klukkan hringir tíu mínútum seinna þá erum við jafnvel að vakna upp af dýpri svefni heldur en við vorum að vakna af fyrst og erum jafnvel þreyttari þannig að það er erfiðara að fara á fætur. Flestir vísindamenn mæla því gegn að snúsa,“ segir Erla.

Erla Björnsdóttirvísir/gva
Spurning hvaða áhrif það hefur á okkur að sofa með snjallsímann í seilingarfjarlægð

Varðandi það hvort maður geti hreinlega orðið háður því að snúsa segir Erla að við séum auðvitað mjög fljótt að koma okkur í rútínu og venjast því sem við gerum á hverjum degi.

„Þannig að ef þetta er eitthvað sem við gerum alltaf þá er þetta það sem líkaminn er farinn að búast við. Ef við þurfum að vakna klukkan sjö þá myndum við stilla klukkuna á hálfsjö til að við hefðum þennan langa aðdraganda að því að vakna. Svo er þetta samt líka spurning með snjallsímann og hvaða áhrif það hefur á okkur að vera að sofa með hann í seilingarfjarlægð frá okkur. Það er eitthvað sem er jafnvel talið vera skaðlegt út af þessum bylgjum sem hann er að senda frá sér,“ segir Erla en bætir við að það sé erfitt að svara spurningunni um það hvort að það sé skaðlegt fyrir mann að snúsa.

„Ef þú sefur vel og þetta er ekkert að trufla þig, þú nærð að vakna ágætlega eftir þennan hálftíma, þá er það allt í lagi. Ef þú værir hins vegar að glíma við einhver svefnvandamál þá er þetta eitthvað sem maður myndi vilja skoða.“

Eins og áður segir er alþjóðlegur dagur svefnsins í dag en markmið dagsins í ár er að minna á að það að sofa illa og vera sífellt syfjaður á daginn er ekki eðlilegt ástand. Flestir geta lært að sofa vel en inni á vefsíðu Hins íslenska svefnrannsóknarfélags er hægt að taka stutt próf sem gerir fólki kleift að kanna hvort það sé að sofa nóg og hvort það þjáist af of mikilli dagsyfju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×