Desemberspá Siggu Kling - Nautið: Það sem mestu skiptir fyrir þig er fjölskylda, vinir og ástin 2. desember 2016 09:00
Elsku fallega nautið mitt, tilfinningaríka og yndislega. Þú ert búið að vera með hjartað í þér út um allt. Það eru miklar líkur á því að veikindi hafi haft áhrif eða töluverðar áhyggjur af orkuleysi. Þegar líðanin er þannig getur þér fundist að þú sért svolítið lítið í þér. Það er því nauðsynlegt fyrir þig að taka næsta mánuð eins rólega og þú getur, að einfalda líf þitt og sleppa því sem skiptir engu máli. Það sem mestu skiptir fyrir þig er fjölskylda, vinir og ástin. Dekraðu við þá og reyndu að taka þér eins mikið frí og þú mögulega getur. Þú þarft að skilja það að heimili þitt er uppspretta orku þinnar. Þegar þú jarðtengir þig verður það heimilið sem verður þín jörð. Slepptu því alveg að þrífa fyrir þessi jól, kveiktu bara á kertaljósum og fáðu þér sólgleraugu. Þú skalt njóta þess litla sem verður sent til þín og ekki reyna að vinna einhverja stórsigra í næsta mánuði. Þú munt finna hamingjuna umlykja þig og þú munt átta þig á því hvað þú ert ríkt naut. Heilsan virðist eflast hjá þeim sem fara eftir þessu. Gleðin eflist einnig svo þú munt hlæja þig í gegnum desembermánuð. Þú átt svo erfitt með að segja nei. En ef manneskja sem tengist þér náið biður þig um eitthvað eða að vinna verkefni sem mega bíða, þá skalt þú æfa þig að segja: „Því miður hef ég ekki tíma og ég verð að segja nei.“ Fólk í kringum þig gæti verið svolítið hissa, af því að þú virkar alltaf jákvætt og tilbúið í allt, en það á bara eftir að virða þig meira fyrir vikið. Þú skapar þína orku og kraft einnig í gegnum vatn, þú þarft að sitja við sjóinn, þar færðu þínar bestu hugmyndir. Svo gerðu það ef þig vantar innblástur, besta jógað fyrir þig er að vera í baði ef þú ert að leita að friði. Sem sagt vatn í allri sinni mynd gefur þér það sem þig vantar. Þessi mánuður á eftir að skapa sterkar minningar, því að þú átt eftir að sjá hversu mikið þú verður elskað. Og þau naut sem eru á lausu gætu mjög vel fundið ástina en þú þarft að skilja, þar sem þú ert svo andlegt, að fyrsta hugsun sem kemur til þín um ástargyðju eða ástarprins er rétt. Ef þú finnur sterkt að það sé einhver bölvuð vitleysa að tengjast þessari manneskju, farðu þá eftir því hugboði. Þú átt eftir að eflast og líða betur og taka þessu lífi með meiri ró en þú hefur gert í langan tíma. Mottó: Lífið er partí og þú ert veislustjórinn.Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, Alda í Handy pandy, naglalistakona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Lífið Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Bíó og sjónvarp Andrew á Louvre Menning Farin frá Form Lífið Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka Lífið Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Lífið „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Lífið Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Lífið Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina Sjá meira