Desemberspá Siggu Kling - Meyjan: Þú hefur þennan kraft eins og bambusinn 2. desember 2016 09:00
Elsku hjartans fagra meyjan mín. Það er búið að vera mikið uppgjör í mörgu síðastliðið ár hjá þér, og það tekur á. En þú ert eins og kötturinn, þú hefur níu líf og þú munt alltaf bjarga þér fyrir horn, það er í eðli þínu. Skilaboðin eru skýr og eina hugsunin sem þú þarft að hafna er að vorkenna sjálfri þér. Móðir mín sagði alltaf við mig þegar ég var að alast upp: Ekki vorkenna sjálfri þér, Sigga mín, þú kemst ekkert áfram á því. Þetta er eina setningin sem situr eftir í huga mér, en samt vorum við mjög nánar vinkonur. Þetta hefur hjálpað mér rosalega, og mun hjálpa þér að fara yfir þær hindranir, sem þú hefur kallað yfir þig ósjálfrátt. Þú ert sterkari en flestir í kringum þig, svo að ef þú ættir að segja eitthvað við sjálfa þig á hverjum degi, alveg sama þó það sé vont veður í kringum þig, þá er það „ég er sterk“. Það mun brjóta niður allar hindranir sem þér finnst vera svo ofsalega stórar, og þú hefur ekki viljað takast á við. Í þér býr karakter, sem hefur svo ótrúlega margt til að bera. Þú skalt ekki trúa því í eina mínútu þó svo að þú sért í meyjarmerkinu, að þú sért ferköntuð. Ef fólki finnst það, þá þekkir það þig bara ekki neitt. Þú hefur þennan kraft eins og bambusinn, hann getur bognað niður að jörð en alltaf mun hann spretta upp aftur, því það er ekki hægt að brjóta hann. Ef þú finnur fyrir einhverri hræðslu, þá er hún bara tengd sjálfri þér, svo hún er algjörlega tilgangslaus og lætur þig eyða tímanum í algera vitleysu. Þú skalt passa þig á innihaldslausum ástarævintýrum hvort sem þú ert í sambandi eða á lausu, því að þau geta átt það til að rugla kerfinu þínu og valda þér vanlíðan. Og þetta á sérstaklega við þær konur sem eru svo heppnar að vera í þessu merki. Þú átt það til að verða svo ástfangin, jafnvel af húsi, bíl, sjálfstæðum atvinnurekstri eða manneskju, og þegar þú færð það sem að þú vilt getur þú misst algerlega áhugann. Þú átt eftir að geisla af krafti og eldmóði og fólkið í kringum þig hrífst af ákveðni þinni í að láta drauma þína rætast. Ég bið þig um að vera ekki of skynsöm, því að það er svo hrikalega leiðinlegt, láttu það bara eftir þér sem þú átt skilið, því að þú átt að vera persóna númer eitt í þínu lífi. Annars hefur þú engan kraft til að gefa þeim sem þú elskar það sem þú vilt. Gerðu hlutina með mildi, hafðu ekki uppi stór orð, talaðu alls ekki illa um aðra því þá að munt þú kalla á að þú lendir í svipuðum aðstæðum og þú hneykslast á. Í þessu leiksviði sem er líf þitt leikur þú aðalhlutverkið, það fer þér nefnilega svo illa að sitja á aftasta bekk í lífsins leikhúsi. Desembermottó: Ég er búin til úr ást, ég gef ást og fæ ást, það er lögmál. Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Selma Ragnars, fatahönnuður Íslands, Lalli Johns góðkunningi lögreglunnar, Sema Erla Serdar.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Lífið Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Lífið „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Lífið Fögnuðu heimkomu Nemo Lífið Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Lífið „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Lífið Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Lífið Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Lífið Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Lífið Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Lífið Fleiri fréttir Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Nýir Íslendingar heimsóttu Bessastaði Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Fyndnustu gæludýramyndir ársins Meistari B-kvikmyndanna látinn Krakkatían: Prinsar, fótbolti og Hollywood pör „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni 93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi Fauk í Joost þegar hann var myndaður eftir flutninginn Eurovision-vaktin: Nemo vann á dramatísku kvöldi í Malmö Norski stigakynnirinn hættir við Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Spáir Ísrael sigri í Eurovision „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Sjá meira