Desemberspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Láttu ástina finna þig, ekki leita að henni 2. desember 2016 09:00
Elsku djúpi sporðdrekinn minn. Þú ert sko miklu sterkari en þú heldur, það eru búnar að vera miklar áskoranir í kringum þig og þú hefur tekið þeim eins og sannur bardagamaður. Ef einhver veikindi eru að hrjá þig, þá er það af því að þú hefur gefist upp í einhverju sem tengist bardaga lífsins. Þá þarft þú að skoða í kringum þig, hvað hefur valdið því. Þú þarft að spyrja þig, er ég hamingjusamur? Ef svarið er nei, þá þarftu að skoða út af hverju. Mögulega er það út af því að óskir þínar hafa ekki ræst. Hvernig væri þá að finna sér nýjar óskir? Svo er það hin tegundin af sporðdrekanum, því að ég verð að segja ykkur að það eru tvær gerðir af sporðdrekum. Sumir ykkar eiga það til að dvelja of lengi í því neikvæða og þá er það hið neikvæða sem mun mæta ykkur. Þið eruð kannski 20% af öllu sporðdrekamerkinu sem þetta á við. Hin 80% eru á fljúgandi ferð að skapa líf sitt með gleði og hamingju. Það býr svo mikill ofurhugi í þér og þú ert svo mikill magnari hugsana þinna, að margir ótrúlega miklir leiðtogar hafa verið í sporðdrekamerkinu. Þú þarft að sleppa því að drukkna í eigin hugsunum og vanda vel valið á þeim hugsunum sem fá að dvelja í heilabúi þínu. Þú ert með dásamlega kímnigáfu og frásagnarkraft, og þegar þú ert í essinu þínu, þá er enginn flottari en þú. Þú hefur stórkostlegra hæfileika til að elska, en hefur tilhneigingu til að hugsa þig frá ástinni, vegna þess að þú óttast höfnun, og trúir ekki að þú getir höndlað hana. Ef þú hefur áhuga á að nýtt samband birtist þér, þá þarft þú að vera með það á hreinu hvað þú vilt að ástin gefi þér. Kynlíf er alls ekki aðalatriðið í ástinni, þú þarft líka að geta talað við og treyst og nennt að hanga með ástarprinsinum eða ástarprinsessunni. Desember er að gefa þér fegurð og skemmtilegar upplifanir, þú ert búinn að fara yfir erfiðasta kafla ársins og þú munt ljúka árinu með stæl. Það eina sem getur flækst fyrir þér er asnaleg kvíðatilfinning yfir því að standa þig ekki nógu vel, þú getur alveg hent því á haugana, því að þetta er mánuður hlýju frá fjölskyldu og fyrirgefningar. Það er nauðsynlegt fyrir þig að vera svolítið óþekkur, því að þá ertu svo aðlaðandi og skemmtilegur og það fer þér svo einstaklega vel. Skilaboð mín til þín, þetta reddast er ævisaga mín.Frægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum Áskorun Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Lífið Fleiri fréttir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Sjá meira